Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 708

19. apríl 2021, kl. 08:30 til 10:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 312 liður 1

    Fundargerðir bæjaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Rúnar Már vék af fundi undir umfjöllun og afgreiðslu fundargerða bæjarráðs.

    Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. apríl sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2021 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2104079 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir fyrir janúar - febrúar 2021, skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - mars 2021.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2020 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2004074 Allur ferill málsins

    Framlagt til upplýsinga deildayfirlit fyrir rekstur deilda og málaflokka í sveitarsjóði á árinu 2020.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2022-2025

    Mál 2104074 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2022 og 3ja ára áætlun áranna 2023-2025.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  4. 4. Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði

    Mál 2006076 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins frá 14. apríl, er varðar fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði.

  5. 5. Áform um gerð burðarþolsmats og eldissvæðaskiptingu í Mjóafirði

    Mál 2104070 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til svæðisráðs um skipulag haf- og strandsvæða, þar sem tilkynnt er að óskað hafi verið eftir við Hafrannsóknastofnun að hún framkvæmi burðarþolsmat fyrir Mjóafjörð í tengslum við fiskeldi í firðinum. Fjarðabyggð hefur áður hvatt til þess að Mjóifjörður verði settur í útboð til fiskeldis og styður áform ráðuneytisins.

  6. 6. Breyting á reglugerð um kjör íþróttamann ársins 2021

    Mál 2103096 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar bæjarráðs drögum að breytingum á reglugerð um kjör íþróttamanns Fjarðabyggðar.

    Pálína Margeirsdóttir formaður íþrótta- og tómstundanefndar óskaði eftir að taka erindi að nýju upp í nefndinni.

  7. 7. Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar - 2020 og 2021

    Mál 1911151 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð varðandi sumaropnun bókasafnanna.

    Bæjarráð vísar erindi til skoðunar forstöðumanns safnastofnunar og bæjarritara til úrlausnar, þannig að bókasöfnin verði opin með sama fyrirkomulagi og síðasta sumar.

  8. 8. Aðalfundur samtaka atvinnulífsins 2021

    Mál 2104065 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar aðalfundarboð Samtaka atvinnulífsins sem fer fram miðvikudaginn 12. maí næstkomandi.

  9. 9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 286

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 286 frá 12. apríl, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 9.1 740 Þiljuvellir 4 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
    2. 9.2 740 Strandgata 77 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
    3. 9.3 740 Naustahvammur 19 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
    4. 9.4 760 Sólvellir 21 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
    5. 9.5 730 Heiðarvegur 7 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
    6. 9.6 750 Hafnargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi, hækkun hluta þaks verksmiðjuhús
    7. 9.7 760 Selnes 7 - Umsókn um byggingarleyfi, rífa hús
    8. 9.8 735 Strandgata 43 - Umsókn um byggingarleyfi, bílskúr
    9. 9.9 750 Stekkholt 8-10 - Umsókn um byggingarleyfi, parhús
    10. 9.10 735 Strandgata 88 - Umsókn byggingarleyfi, einbýlishús
    11. 9.11 750 Hafnargata 23 - Framkvæmdaleyfi, fylling
    12. 9.12 Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021
    13. 9.13 Garðaúrgangur
    14. 9.14 Sauðfé í þéttbýli - úrræði
    15. 9.15 Fjárréttir í Fjarðabyggð
    16. 9.16 Friðlýsing Gerpissvæðisins
    17. 9.17 Hönnun á lóð við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði
    18. 9.18 Umsókn vegna uppsetningar á varanlegum skúlptúr á Stöðvarfirði
    19. 9.19 Skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á orkukostnaði heimila árið 2020
    20. 9.20 22. Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa 2021
    21. 9.21 730 Hjallanes 8 - Umsókn um byggingarleyfi, milligólf
    22. 9.22 Landbúnaðarnefnd - 27
  10. 10. Landbúnaðarnefnd - 27

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð landbúnaðarnefndar, nr. 27 frá 7. apríl, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 10.1 Sauðfé í þéttbýli - úrræði2103192
    2. 10.2 Fjárréttir í Fjarðabyggð1808042
    3. 10.3 Fjallskil og gangnaboð 20212103090
    4. 10.4 Varnarlínur í Fjarðabyggð2104020
  11. 11. Íþrótta- og tómstundanefnd - 87

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 87 frá 12. apríl, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 11.1 Endurskoðun styrkjamála til íþróttafélaga 2021
    2. 11.2 Börn af erlendum uppruna og íþróttir bæklingur
    3. 11.3 Viðhorfskönnun landshlutasamtaka sveitarfélaga
    4. 11.4 Íþróttamál Breiðdalsvík
    5. 11.5 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
  12. 12. Barnaverndarnefnd 2021

    Mál 2101080 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 129 frá 15. apríl, lögð fram til afgreiðslu.