Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 709

26. apríl 2021, kl. 08:30 til 10:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 312 liður 2

    Fundargerðir bæjaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Rúnar Már vék af fundi undir umfjöllun og afgreiðslu fundargerða bæjarráðs.

    Fundargerð bæjarráðs frá 26. apríl sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2021

    Mál 2104090 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2021 með tilliti til áætlana.

  2. 2. Áfangastaðir ferðamanna 2021

    Mál 2104121 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um uppbyggingu áfangastaða ferðamanna í Fjarðabyggð.

    Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar til afgreiðslu. Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt starfsmönnum að ljúka við þá áfanga sem sótt hefur verið um og opnir eru sumarið 2021 ásamt lokaskilum til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.

  3. 3. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2021

    Mál 2104092 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að umsókn um 64 milljóna króna lán úr Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda á árinu 2020. Í fjárhagsáætlun ársins 2021 er gert ráð fyrir lántöku vegna þessa að fjárhæð 30 milljónir króna.

    Bæjarráð samþykkir að sótt verði um lán til Ofanflóðasjóðs sbr. framlagða tillögu.

  4. 4. Upplýsingar um fjármál einstakra sveitarfélaga

    Mál 2104099 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þar sem óskað er eftir upplýsingum um fjármál sveitarfélaga vegna þeirra aðstæðna sem verið hafa í samfélaginu síðasta árið. Óskað er eftir að fjárhagsáætlanir með viðaukum verði sendar ráðuneytinu eigi síðar en 1.júní.

    Fjármálastjóra falið að vinna upplýsingar og senda til ráðuneytisins.

  5. 5. Breyting á viðauka við lánsamning 182.420.673 kr. frá 10.6. 2011

    Mál 2104103 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2011, upphaflega að fjárhæð 182.420.673 þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasamningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.

  6. 6. Breyting á viðauka við lánasamning 360.000.000 kr. frá 10.6. 2011

    Mál 2104104 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2011, upphaflega að fjárhæð 360.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasamningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.

  7. 7. Breyting á viðauka við lánasamning 200.000.000 kr. frá 1.10.2013

    Mál 2104105 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2013, upphaflega að fjárhæð 200.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasamningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.

  8. 8. Breyting á viðauka við lánasamning 400.000.000 kr. frá 3.2. 2017

    Mál 2104106 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2017, upphaflega að fjárhæð 400.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasamningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.

  9. 9. Breyting á viðauka við lánasamning 360.000.000 kr. frá 19.6. 2015

    Mál 2104107 Allur ferill málsins

    Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2015, upphaflega að fjárhæð 360.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasmaningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.

  10. 10. Bílasýning í Fjarðabyggðarhöllinni sumarið 2021

    Mál 2104098 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Gísla Birgis Gílslasonar f.h. Bílaklúbbs Austurlands, er varðar afnot af Fjarðabyggðarhöllinni fyrir bílasýningu sumarið 2021. Einnig er lagt fram minnisblað fasteigna- og framkvæmdafulltrúa.

    Ekki er hægt að nýta höllina til sýningar bifreiða án gólfs sem hannað er til að bera tækin. Bæjarráð vísar erindi til afgreiðslu fasteigna- og framkvæmdafulltrúa til úrvinnslu.

  11. 11. Rekstur hjúkrunarheimila 2021

    Mál 2102144 Allur ferill málsins

    Umræða um rekstur og fjármál hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð í aðdraganda yfirtökum Heilbrigðisstofnunar Austurlands á rekstri þeirra 1. maí 2021.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að vinna ásamt framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna að lokaskilum vegna yfirtöku Heilbrigðisstofnunar Austurlands á rekstrinum 1. maí 2021.

  12. 12. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2021

    Mál 2104102 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Náttúrustofu Austurlands frá 16. apríl sl. lögð fram til kynningar.

  13. 13. 668.mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 1622006 (gagnsæi, skráning og vinnsla persónuupplýsinga)

    Mál 2104113 Allur ferill málsins

    Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, nr. 162/2006 (gagnsæi, skráning og vinnsla persónuupplýsinga), 668. mál. Ef veita á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 12. maí nk. - https://www.althingi.is/altext/151/s/1137.html

  14. 14. Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2021

    Mál 2104063 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð aðalfundar Starfsendurhæfingar Austurlands sem boðaður er 28. apríl nk.

    Bæjarráð samþykkir að fulltrúi fjölskyldusviðs fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

  15. 15. Hafnarstjórn - 261

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 261 frá 21. apríl sl. lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    2. 15.2 Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn2101111
    3. 15.3 Umsókn um nýtingu landtengihúsa og -skápa2104088
    4. 15.4 Landtengingar hafna2002112
    5. 15.5 Leyfi til umskipunar olíu - Vermland2103001
    6. 15.6 Beiðni um styrk - Ný Hafbjörg2104019
    7. 15.7 Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 20212104021
    8. 15.8 Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn2010176
    9. 15.9 Dæla í Neskaupstað2104115