Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

Breyting á viðauka við lánasamning 360.000.000 kr. frá 19.6. 2015

Mál 2104107 Fyrst á dagskrá 26. apríl 2021, síðast 6. maí 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2021

    Bæjarráð, fundur 709 liður 9

    Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2015, upphaflega að fjárhæð 360.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasmaningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 312 liður 15

    Samningar um breytingar á viðaukum lánasamninga við Íslandsbanka frá árinu 2011 í dagskrárliðum 11 til 15 teknir til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Bæjarstjóri mælti fyrir skilmálabreytingum.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar samningi um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2015, upphaflega að fjárhæð 360.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasmaningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum framlagða breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka.

  3. Bæjarstjórn, fundur 312 liður 2.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 709“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is