Breyting á viðauka við lánasamning 400.000.000 kr. frá 3.2. 2017
Mál 2104106 Fyrst á dagskrá 26. apríl 2021, síðast 6. maí 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Bæjarráð, fundur 709 liður 8
Framlagður samningur um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2017, upphaflega að fjárhæð 400.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasamningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 312 liður 14
Samningar um breytingar á viðaukum lánasamninga við Íslandsbanka frá árinu 2011 í dagskrárliðum 11 til 15 teknir til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Bæjarstjóri mælti fyrir skilmálabreytingum.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar samningi um breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka frá árinu 2017, upphaflega að fjárhæð 400.000.000 kr. þar sem felld eru niður sérstök ákvæði um kvaðir í lánasamningnum um skuldaviðmið og hlutfall veltufjár frá rekstri.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum framlagða breytingu á viðauka lánasamnings við Íslandsbanka.
-
Bæjarstjórn, fundur 312 liður 2.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 709“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.