Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 710

3. maí 2021, kl. 08:30 til 09:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 312 liður 3

    Fundargerðir bæjaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Rúnar Már vék af fundi undir umfjöllun og afgreiðslu fundargerða bæjarráðs.

    Fundargerð bæjarráðs frá 3. maí sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Háskólaútibú Austurlands

    Mál 1710150 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála er varðar undirbúning starfsemi háskólaútibús á Austurlandi. Fyrir liggur að komið sé fjármagn frá Mennta- og menningarmálaráðneytinu til að hefja starfsemi útbús á Reyðarfirði á hausti komandi.

    Bæjarráð fagnar þeim áfanga að komin sé hreyfing á málið og mun styðja við starfsemi háskólaútibúsins eins og kostur er.

  2. 2. Lóð ofan Norðfjarðarvegar Eskifirði

    Mál 2104128 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Emils K. Thorarensen frá 19. apríl en í því býður hann Fjarðabyggð til sölu óskipulagða lóð sem er staðsett ofan Norðfjarðarvegar í Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að hefja viðræður við lóðarhafa um kaup á lóðinni.

  3. 3. 730 Brekkugerði 1 - Umsókn um lóð

    Mál 2104051 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lóðarumsókn Patreks Trostans Stefánssonar þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús á lóðinni við Brekkugerði 1 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  4. 4. Samningur um breytingu á rekstri Skólaskrifstofu Austurlands

    Mál 2102078 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar undirritaður samningur sveitarfélaganna Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps, Múlaþings og Vopnafjarðarhrepps, um breytingar á samningi um Skólaskrifstofu Austurlands.

    Bæjarráð staðfestir samninginn og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  5. 5. Þjónustugátt í bókasöfnum Fjarðabyggðar

    Mál 2104175 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi starfsmanna bókasafnanna í Fjarðabyggð er varðar starfsemi safnanna.

    Bæjarráð vísar erindi til afgreiðslu forstöðumanns safnastofnunar og bæjarritara.

  6. 6. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2021

    Mál 2102141 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar samtaka orkusveitafélaga frá 16. apríl lögð fram til kynningar.

  7. 7. Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022

    Mál 1908104 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Hjördísar Helgu Seljan Þóroddsdóttur um að hún muni taka leyfi frá störfum í bæjarstjórn næstu þrjá mánuði eða frá 15. maí til 15. ágúst.

    Magni Þór Harðarson mun taka sæti hennar í bæjarstjórn.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 287

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 287 lögð fram til umfjöllunar.

    1. 8.1 Vorbæklingur 20212104036
    2. 8.2 Sauðfé í þéttbýli - úrræði2103192
    3. 8.3 Garðaúrgangur1609089
    4. 8.4 Deiliskipulag Eskifjörður-Miðbær, breyting, Lambeyrarbraut, vistgata og ný lóð2101072
    5. 8.5 730 Brekkugerði 1 - Umsókn um lóð2104051
    6. 8.6 740 Naustahvammur 67 - Umsókn um byggingarleyfi, byggja við löndunarhús2104005
    7. 8.7 755 Bólsvör 1 - Umsókn um byggingarleyfi, rífa hús2104045
    8. 8.8 740 Hafnarbraut 20 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2104072
    9. 8.9 Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð1904072
    10. 8.10 708.mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald (EES-reglur, hringrásarhagkerfi)2104078
    11. 8.11 712.mál - Frumvarp til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana2104080
    12. 8.12 Verkefni sorpmiðstöðvar 20212104119
    13. 8.13 Alcoa Foundation, umhverfisverkefni 20212104047
    14. 8.14 Skorrastaðir, kvörtun vegna fuglafælu2104138
    15. 8.15 Friðlýsing Gerpissvæðisins2001205