Landbúnaðarnefnd, fundur 27
7. apríl 2021, kl. 14:00 til 16:00, í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Anna Berg Samúelsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Baldursson, formaður
- Ármann Elísson, aðalmaður
- Marsibil Erlendsdóttir, aðalmaður
- Sigurður Borgar Arnaldsson, aðalmaður
- Guðný Harðardóttir, varamaður
Starfsmenn
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 708 liður 10
Fundargerð landbúnaðarnefndar, nr. 27 frá 7. apríl, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 312 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð landbúnaðarnefndar frá 7. apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sauðfé í þéttbýli - úrræði
Mál 2103192 Allur ferill málsins
Landbúnaðarnefnd vann tillögur að úrbótum vegna ágangsfjárs í þéttbýli Fjarðabyggðar. Nefndin felur umhverfisstjóra frekari úrvinslu tillagnanna og leggja þær fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Jafnframt er umhverfisstjóra falið að ræða við Vegagerðina í samræmi við umræðir á fundinum.
-
2. Fjárréttir í Fjarðabyggð
Mál 1808042 Allur ferill málsins
Landbúnaðarnefnd fór yfir ástand fjárrétta og girðinga í Fjarðabyggð. Nefndin felur umhverfisstjóra að vinna frekar með málið í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
3. Fjallskil og gangnaboð 2021
Mál 2103090 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverisstjóra um fjallskil og eftirleitir síðustu ár í Fjarðabyggð. Landbúnaðarnefnd fjallaði um málið, umhverfisstjóra falið að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum. Jafnframt var rætt ástand skógræktargirðinga og umhverfisstjóra falið að fylgja því máli eftir í samræmi við umræður á fundinum.
-
4. Varnarlínur í Fjarðabyggð
Mál 2104020 Allur ferill málsins
Lagt fyrir landbúnaðarnefnd minnisblað búfjáreftirlitsmanns MAST er varðar sauðfjárveikivarnarlínu í Fjarðabyggð. Umhverfisstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.