Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirLandbúnaðarnefnd

Landbúnaðarnefnd, fundur 28

17. ágúst 2021, kl. 14:00 til 16:00, í Molanum. Fundargerð ritaði Anna Berg Samúelsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Sigurður Baldursson, formaður
  • Ármann Elísson, aðalmaður
  • Guðný Harðardóttir, varamaður
  • Sigurður Borgar Arnaldsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Fjallskil og gangnaboð 2021

    Mál 2103090 Allur ferill málsins

    Landbúnaðarnefnd fjallaði um fjallskil fyrir komandi haust og raðaði niður í göngur eftir því sem fjárvon er í sveitarfélaginu. Umhverfisstjóra var falið að senda út gangnaseðil.

  2. 2. Fjárréttir í Fjarðabyggð

    Mál 1808042 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra, sem lagt var fyrir 289. fund eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, dags, 25/5 2021, um forgangsröðun verkefna.

    Landbúnaðarnefnd felur umhverfisstjóra að fjárréttir sem eru flokkaðar sem forgangur 1 í minnisblaði verði lagfærðar í samræmi við framkomnar tillögur.