Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 706

29. mars 2021, kl. 08:30 til 10:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 311 liður 2

    Fundargerðir bæjaráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Jón Björn Hákonarson, Ragnar Sigurðsson, Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 29. mars sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021

    Mál 2101055 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað frá framkvæmdasviði um framkvæmdir við íþróttahús á Reyðarfirði. Þann 17 mars 2021 voru opnuð tilboð í verkið Íþróttahús Reyðarfirði - reising límtrésshúss. Tvö tilboð bárust í verkið.

    Launafl - 62.924.640 kr. 98,4%2 af kostnaðaráætlun

    HK Verktakar - 70.500.000 kr. 110,2% af kostnaðaráætlun

    Kostnaðaráætlun við opnun - 63.950.000 kr.

    Lagt er til að samið verði við Launafl um verkið Íþróttahús Reyðarfirði - Reising Límtréshúss.

    Bæjarráð samþykkir að gengið sé til samninga við lægstbjóðanda. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  2. 2. Friðlýsing Gerpissvæðisins

    Mál 2001205 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tvær síðustu fundargerðir samstarfshóps um friðlýsingu Gerpissvæðisins, frá 10. desember og 28. janúar sl. auk draga að skilmálum og minnisblaðs Umhverfisstofnunar. Umræða um stöðu mála er varðar friðlýsingu svæðisins.

    Bæjarráð tekur málið fyrir að nýju eftir næsta fund samstarfshóps.

  3. 3. Málefni brothættra byggða

    Mál 2103191 Allur ferill málsins

    Framhaldið umræðu um málefni Breiðdals og Stöðvarfjarðar í framhaldi af fundi bæjarráðs með fulltrúum Byggðastofnunar í síðustu viku.

    Bæjarráð samþykkir að sótt verði til Byggðastofnunar um að hafið verði verkefni brothættar byggðir á Stöðvarfirði til eflingar samfélagi og atvinnulífi á staðnum. Bæjarstjóra falið að senda inn umsókn til Byggðastofnunar.

  4. 4. Skapandi sumarstörf 2021

    Mál 2102121 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um verkefnið skapandi sumarstörf sumarið 2021, framkvæmd þess og fjármögnun. Menningar- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að af verkefninu verði og vísar beiðni um fjármögnun þess til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að veitt verði 6,7 m.kr. fjármagni til verkefnisins skapandi sumarstörf í liðinn menningarstofa. Vísað til gerðar viðauka í tengslum við sumarstörf ársins 2021 m.a. vegna óvissu með stöðu faraldurs.

  5. 5. Búðareyri 5 - húsnæði í eigu Afls

    Mál 2103190 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur Afls Starfsgreinafélags þar sem húsnæðið að Búðareyri 5 er boðið sveitarfélaginu til kaups.

    Bæjarráð telur að sveitarfélagið hafi ekki þörf fyrir húsnæðið.

  6. 6. Styrkur til Krabbameinsfélags Austfjarða

    Mál 2012121 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Krabbameinsfélags Austfjarða frá 16. mars sl., lögð fram til kynningar. Félagið óskar jafnframt eftir fjarhagsstyrk frá bæjarráði.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við formann félagsins.

  7. 7. Umsókn um styrk til starfsemi Leiknis Fáskrúðsfirði

    Mál 2103198 Allur ferill málsins

    Knattspyrnudeild Leiknis óskar eftir að gerður verði auglýsinga- og styrktarsamningur milli sveitarfélagsins og deildarinnar, sambærilegan þeim sem sveitarfélagið gerði nýverið við Blakdeild Þróttar.

    Bæjarráð samþykkir að gera sambærilegan samning og við önnur félög er uppfylla skilyrðin. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi og fjármögnun mætt af liðnum æskulýðs- og íþróttamál.

  8. 8. Barnvænt samfélag

    Mál 2006045 Allur ferill málsins

    Framlögð eru drög að erindisbréfi stýrihóps barnvænnar Fjarðabyggðar til meðferðar og samþykktar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og felur jafnframt bæjarstjóra að fara yfir forsendur þess.

  9. 9. Forvarnateymi 2021

    Mál 2101185 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að starfsreglum forvarnateymis Fjarðabyggðar til meðferðar og samþykktar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir starfsreglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  10. 10. Reglur um geymslu og meðferð lyfja

    Mál 2103019 Allur ferill málsins

    Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að reglum um geymslu og meðferð lyfseðilsskyldra lyfja.

    Bæjarráð samþykkir reglur og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

  11. 11. Íbúaskrá Fjarðabyggðar - 1 desember 2019

    Mál 2004014 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað um íbúaþróun í Fjarðabyggð frá árinu 2006 ásamt upplýsingum og samsetningu íbúa.

  12. 12. 740 Blómsturvellir 18 - Umsókn um lóð

    Mál 2103035 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Ásrúnar Bjargar Sveinsdóttur þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús á lóðinni við Blómsturvelli 18 á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  13. 13. Gjaldskrá leikskóla 2021

    Mál 2009122 Allur ferill málsins

    Umræða um álagningu leikskólagjalda og dagvistargjalda barna vegna faraldursins.

    Bæjarráð samþykkir sömu heimildir og veittar voru á árinu 2020 vegna faraldursins sem lúta að afsláttum á gjöldum.

  14. 14. Samningur um rekstur FabLab - stafrænnar smiðju - í Fjarðabyggð

    Mál 2012080 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar yfirlýsing atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Fjarðabyggðar og Verkmenntaskóla Austurlands um samstarfs til að tryggja rekstur stafrænu smiðjunnar Fab Lab Austurlands.

  15. 15. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 36

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 36 frá 23. mars, lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Markaðsátak vegna páska 20212011090
    2. 15.2 Skapandi sumarstörf 20212102121
    3. 15.3 Menningarstyrkir til leigu húsnæðis2103078
    4. 15.4 Gjaldskrá félagsheimila 20212009132
    5. 15.5 Hönnun á lóð við Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði1910074
    6. 15.6 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga 20212103038
    7. 15.7 Umsókn um styrki til menningarmála2102053
    8. 15.8 Umsókn um styrki til menningarmála2102059
    9. 15.9 Umsókn um styrki til menningarmála2102079
    10. 15.10 Umsókn um styrki til menningarmála2102114
    11. 15.11 Umsókn um styrki til menningarmála2102151
    12. 15.12 Umsókn um styrki til menningarmála2102152
    13. 15.13 Umsókn um styrki til menningarmála2102165
    14. 15.14 Umsókn um styrki til menningarmála2103016
    15. 15.15 Umsókn um styrki til menningarmála2102171
    16. 15.16 Umsókn um styrki til menningarmála2103010
    17. 15.17 Umsókn um styrki til menningarmála2102180
    18. 15.18 Umsókn um styrki til menningarmála2102184
    19. 15.19 Umsókn um styrki til menningarmála2103002
    20. 15.20 Umsókn um styrki til menningarmála2103003
    21. 15.21 Umsókn um styrki til menningarmála2103004
    22. 15.22 Umsókn um styrki til menningarmála2103005
    23. 15.23 Umsókn um styrki til menningarmála2103006
    24. 15.24 Umsókn um styrki til menningarmála2103007
    25. 15.25 Umsókn um styrki til menningarmála2103008
    26. 15.26 Umsókn um styrki til menningarmála2103009
    27. 15.27 Umsókn um styrki til menningarmála2103011
    28. 15.28 Umsókn um styrki til menningarmála2103013
    29. 15.29 Umsókn um styrki til menningarmála2103014
    30. 15.30 Umsókn um styrki til menningarmála2103015