Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021
Mál 2101055 Fyrst á dagskrá 29. mars 2021, síðast 25. júlí 2022. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Mannvirkja- og veitunefnd.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 15. apríl 2021, frá 0:40:08
Í heiti málsins: ReyðarfjörðurByggingar og framkvæmdirÍþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2021
Bæjarráð, fundur 706 liður 1
Framlagt minnisblað frá framkvæmdasviði um framkvæmdir við íþróttahús á Reyðarfirði. Þann 17 mars 2021 voru opnuð tilboð í verkið Íþróttahús Reyðarfirði - reising límtrésshúss. Tvö tilboð bárust í verkið.
Launafl - 62.924.640 kr. 98,4%2 af kostnaðaráætlun
HK Verktakar - 70.500.000 kr. 110,2% af kostnaðaráætlun
Kostnaðaráætlun við opnun - 63.950.000 kr.
Lagt er til að samið verði við Launafl um verkið Íþróttahús Reyðarfirði - Reising Límtréshúss.
Bæjarráð samþykkir að gengið sé til samninga við lægstbjóðanda. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
Bæjarstjórn, fundur 311 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 706“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 311. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:40:08 raunafl um að reisa húsið þau skiluðu tilbúðir sem var undir kostnaðaráætlun sem er mjög ánægjulegt og hérna alltaf gaman þegar lokalverktakar eru hagstæðastir það er gott mál þannig að það fer að rísa mjördóðs á reyðarfirði sem ég held að hann sé ánægður með aðeins um mál tvö þrjú
-
2022
Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 2 liður 2
Mannvirkja- og veitunefnd fór í skoðunarferð í nýja íþróttahúsið á Reyðarfirði. Áætluð verklok eru í september. Lýsir nefndin yfir ánægju sinni með þetta glæsilega mannvirki.
-
Bæjarráð, fundur 759 liður 7.2
Fundargerðin „Mannvirkja- og veitunefnd - 2“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.