Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 2

8. júlí 2022, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Elís Pétur Elísson, varaformaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Birkir Snær Guðjónsson, varamaður
  • Ívar Dan Arnarson, varamaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 759 liður 7

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 11. júlí tekin til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir fundargerð mannvirkja- og veitunefndar í umboði bæjarstjórnar sem fól bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi hennar stendur.

Dagskrá

  1. 1. Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir

    Mál 2001140 Allur ferill málsins

    Mannvirkja- og veitunefnd fór í skoðunarferð í Fjarðabyggðarhöllina og með nefndinni var Valgeir Kjartansson frá Mannvit. Sviðstjóra framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.

  2. 2. Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 2021

    Mál 2101055 Allur ferill málsins

    Mannvirkja- og veitunefnd fór í skoðunarferð í nýja íþróttahúsið á Reyðarfirði. Áætluð verklok eru í september. Lýsir nefndin yfir ánægju sinni með þetta glæsilega mannvirki.

  3. 3. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022

    Mál 2202061 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar fundargerð Heilbrigðiseftirlits Austurlands.