Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 3

7. september 2022, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, varamaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Snorri Styrkársson

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 765 liður 10

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 7. september lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 339 liður 4

    Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar teknar saman til umræðu og afgreiðslu.

    Til máls tók Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 7. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023

    Mál 2208082 Allur ferill málsins

    Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023.

    Fjármálastjóri kynnir helstu áherslur bæjarráðs fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2023.

    Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi.

  2. 2. Rekstrarform Hitaveitu Fjarðabyggðar

    Mál 2208146 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar minnisblaði KPMG um áhrif þess ef breyting verður gerð á bókhaldslegu rekstrarformi Hitaveitu Fjarðabyggðar með tilliti til skattaumhverfis opinberra orku fyrirtækja.

  3. 3. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2021

    Mál 2208075 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2021 lagður fram til kynningar. Hefur þegar verið samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar.

  4. 4. Álagning vatnsgjalds - breytt aðferð álagningar

    Mál 2002002 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar samþykkt bæjarráðs frá 22.8. 2022 breytingu á álagningu vatnsgjalds á grunni samantektar fjármálastjóra á hugmyndum um breytingu á álagningu vatnsgjalds í Fjarðabyggð frá 2020. Bókun bæjarráðs var "samþykkir að hefja vinnu við breytingu á framsetningu álagningar á vatnsgjaldi þar sem horft verður til stærðar eigna í sveitarfélaginu í stað verðmætis. Fjármálastjóra falið að hefja þá vinnu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2023."

  5. 5. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2021

    Mál 2208076 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf fyrir árið 2021 lagður fram til kynningar. Hefur þegar verið samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar.

  6. 6. Fráveitustyrkir - Fjarðabyggð

    Mál 2207109 Allur ferill málsins

    Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar fékk styrk vegna framkvæmda við fráveitur, hönnun á fráveitum sveitarfélagsins, á árinu 2022.

    Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram á milli funda og leggja fyrir að nýju.

  7. 7. Bréf frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar

    Mál 2208086 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar. Mannvirkja- og veitunefnd þakkar íbúasamtökum Stöðvarfjarðar erindið og felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir þau verkefni sem í erindinu eru og hafa þau í huga fyrir áætlanir næstu missera.

  8. 8. Björgunnarhringir við vötn í Fjarðabyggð

    Mál 2209018 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Slysavarnardeildinni Hafdísi á Fáskrúðsfirði um uppsetningu björgunarhringja við vötn í Fjarðabyggð.

    Vísað frá bæjarráði til mannvirkja- og veitunefndar til úrvinnslu.

    Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið á sama hátt og við Andapollinn á Reyðarfirði.

  9. 9. Mannvirkja- og veitunefnd

    Mál 2209034 Allur ferill málsins

    Tillaga að fundarplani haustsins 2022 hjá mannvirkja- og veitunefnd. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir fundarplan haustsins 2022