NefndirMannvirkja- og veitunefnd
Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 4
13. september 2022, kl. 16:00 til 18:00, í Hafnarhúsinu Eskifirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 765 liður 11
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 12. september lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 339 liður 5
Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar teknar saman til umræðu og afgreiðslu.
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 13. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn til Orkusjóðs styrkur varnadælur grunnskóli Breiðdalsvík
Mál 2209100 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsókn um styrk til Orkusjóðs vegna upphitnar á Breiðdalsvík sem var hafnað.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023
Mál 2208082 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023. Mannvirkja og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna að fjárhagsáætlun í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi.
-
3. Minnisblað vegna tillögu að breytingu á reikningagerð Hitaveitu Fjarðabyggðar
Mál 2209106 Allur ferill málsins
Lögð fram minnisblöð vegna tillögu að breytingu á reikningagerð Hitaveitu Eskifjarðar. Mannvirkja og veitunefnd samþykkir þessa tillögu að breytingu á reikningagerð og felur forstöðumanni veitna að kynna breytingarnar.