Bæjarráð, fundur 759
25. júlí 2022, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 336 liður 3
Fundargerð bæjarráðs frá 25. júlí lögð fram til kynningar. Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu en bæjarráð afgreiddi mál með fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og loftslagsmál
Mál 1905130 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélag þar sem boðað er til upplýsinga- og samráðsfundar 31. ágúst nk. milli kl 08:00 og 09:00 á Teams þar sem farið verður yfir framgang og stöðu innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum sem ákváðu þátttöku í þeim 2021. Fundurinn er ætlaður til að upplýsa nýkjörna fulltrúa sem og þá sem komið hafa að vinnu við innleiðinguna sem og að halda áfram samstarfi um hana.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjórn fái boð um að setja fundinn ásamt skipulags- og umhverfisfulltrúa.
-
2. Fyrirspurn um framtíð tjaldsvæðis á Stöðvarfirði
Mál 2207084 Allur ferill málsins
Framlögð fyrirspurn Íbúasamtaka á Stöðvarfirði um framtíð tjaldsvæðisins á Stöðvarfirði.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið íbúasamtakanna varðandi mótun stefnu um framtíð tjaldsvæðisins. Erindi Íbúasamtakanna um staðsetningu tjaldsvæðis á íþróttavellinum á Stöðvarfirði vísað til mannvirkja- og veitunefndar til umfjöllunar og kostnaðargreiningar.
-
3. Meint vanhæfi formanns umhverfis- og skipulagsnefndar
Mál 2207101 Allur ferill málsins
Þuríður Lillý Sigurðardóttir vék af fundið við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.
Framlagt erindi Ívars Ingimarssonar um meint vanhæfi formanns umhverfis- og skipulagsnefndar vegna umfjöllunar um erindi hans vegna ágangs sauðfjár í Stöðvarfirði.
Bæjarráð telur að engar forsendur séu fyrir vanhæfi.
-
4. Rammasamningur um aukið framboð íbúða 2023-2032
Mál 2207068 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar rammasamningur um húsnæðismál milli Innviðaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Húnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Bæjarráð samþykkir að skipaður verði starfshópur á grundvelli erindisbréfs og vinni upplýsingar vegna rammasamnings um húsnæðismálin. Erindisbréf lagt fyrir á næsta fundi bæjarráðs ásamt því að starfshópurinn verður skipaður.
-
5. Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 2204062 Allur ferill málsins
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir fyrir janúar - maí og skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - júní 2022
-
6. Styrkumsókn - Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands
Mál 2207107 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni frá Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands um fjárframlag til hátíðarinnar.
Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til hátíðarinnar, tekið af liðnum óráðstafað 21-690.
-
7. Mannvirkja- og veitunefnd - 2
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 11. júlí tekin til umfjöllunar og fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð mannvirkja- og veitunefndar í umboði bæjarstjórnar sem fól bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi hennar stendur.
- 7.1 Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir2001140
- 7.2 Íþróttahús Reyðarfirði - nýbygging 20212101055
- 7.3 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20222202061