Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2022

Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og loftslagsmál

Mál 1905130 Fyrst á dagskrá 27. maí 2019, síðast 25. ágúst 2022. 7 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Umhverfis- og skipulagsnefnd.

Í hnotskurn

Málið fjallar um þátttöku Fjarðabyggðar í samstarfsvettvangi sveitarfélaga á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og loftslagsmál2. Síðast var fundargerð bæjarráðs um boð á upplýsinga- og samráðsfund vettvangsins afgreidd í bæjarstjórn 25. ágúst 20227.

Staðan

Bæjarstjórn afgreiddi fundargerð bæjarráðs nr. 759 með boði um þátttöku í upplýsinga- og samráðsfundinum 31. ágúst 2022 og ekki liggja fyrir frekari skráð skref í málinu.7

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Bæjarráð, fundur 616 liður 12

    Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbæar þróun og loftslagsmál

    Bæjarráð fékk boð á stofnfund samstarfsvettvangsins 19. júní 2019 í Reykjavík og fól bæjarstjóra að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar.

    Endursögn gervigreindar

    Boðað er til stofnfundar samstarfsvettvangs sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbæra þróun og loftslagsmál. Stofnfundurinn verður haldinn 19.júní nk. kl. 13:00 til 14:30 í Reykjavík.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta á fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  2. Bæjarráð, fundur 623 liður 1

    Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbær þróun og loftslagsmál

    Bæjarráð fagnaði í umboði bæjarstjórnar stofnun vettvangsins og lýsti sig tilbúið til þátttöku í fundum og viðburðum hans, auk þess sem fram kom að sveitarstjórn myndi beita sér fyrir aðgerðum og stefnumótun í átt til aukinnar sjálfbærni og kolefnishlutleysis.

    Endursögn gervigreindar

    Lagt fram til kynningar bréf sambandsins frá 26. júní er varðar yfirlýsingu um samstarf sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar fagnar því frumkvæði sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið með stofnun samráðsvettvangs, sem ætlaður er sveitarfélögum landsins til samstarfs og samráðs um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

    Lesa alla bókunina (139 orð til viðbótar)

    Bæjarráð telur brýnt að ríki og sveitarfélög grípi nú þegar til markvissra og samstilltra aðgerða til að mæta áskorunum samtímans á sviði loftslagsmála og aðlaga íslenskt samfélag að þeim breytingum sem þegar hafa átt sér stað og fyrirséðar eru vegna loftslagsbreytinga.

    Einn mikilvægasti liðurinn í því aðkallandi starfi er að íslenskt samfélag verði lagað að kröfum sjálfbærrar þróunar. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt gagnlegan grunn að slíku starfi með heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun. Bæjarráð lýsir sig tilbúið til þátttöku í samráðsvettvanginum með þátttöku í fundum og viðburðum um loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Á sínum vettvangi mun sveitarstjórn beita sér fyrir markvissum aðgerðum og stefnumótun í átt til aukinnar sjálfbærni og kolefnishlutleysis. Fulltrúar sveitarfélagsins munu einnig, eftir því sem tilefni er til og aðstæður leyfa, taka þátt í miðlun þekkingar, þróun mælinga á árangri og öðru samstarfi sem tengist samráðsvettvanginum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 272 liður 2.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 623“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna fyrir heimsmarkmið um sjálfbær þróun og loftslagsmál

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. 2022

    Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 3 liður 10

    Nefndin fékk boð á upplýsinga- og samráðsfund 31. ágúst 2022 um stöðu innleiðingar heimsmarkmiðanna og fól skipulagsfulltrúa að skrá þá nefndarmenn sem vildu sækja fundinn.

    Endursögn gervigreindar

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélag þar sem boðað er til upplýsinga- og samráðsfundar 31. ágúst nk. þar sem farið verður yfir framgang og stöðu innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum sem ákváðu þátttöku í þeim 2021. Fundurinn er ætlaður til að upplýsa nýkjörna fulltrúa sem og þá sem komið hafa að vinnu við innleiðinguna sem og að halda áfram samstarfi um hana.

    Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að skrá þá nefndarmenn er vilja sækja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

  5. Bæjarráð, fundur 759 liður 1

    Bæjarráð samþykkti að bæjarstjórn fengi boð um að sitja fjarfundinn 31. ágúst ásamt skipulags- og umhverfisfulltrúa.

    Endursögn gervigreindar

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélag þar sem boðað er til upplýsinga- og samráðsfundar 31. ágúst nk. milli kl 08:00 og 09:00 á Teams þar sem farið verður yfir framgang og stöðu innleiðingu heimsmarkmiðanna hjá sveitarfélögum sem ákváðu þátttöku í þeim 2021. Fundurinn er ætlaður til að upplýsa nýkjörna fulltrúa sem og þá sem komið hafa að vinnu við innleiðinguna sem og að halda áfram samstarfi um hana.

    Bæjarráð samþykkir að bæjarstjórn fái boð um að setja fundinn ásamt skipulags- og umhverfisfulltrúa.

  6. Bæjarráð, fundur 760 liður 12.10

    Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 3“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  7. Bæjarstjórn, fundur 336 liður 3.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 759“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is