740 Blómsturvellir 18 - Umsókn um lóð
Mál 2103035 Fyrst á dagskrá 22. mars 2021, síðast 15. apríl 2021. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 285 liður 4
Lögð fram lóðarumsókn Ásrúnar Bjargar Sveinsdóttur, dagsett 3. mars 2021, þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús á lóðinni við Blómsturvelli 18 á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
Bæjarstjórn, fundur 309 liður 7.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 285“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 706 liður 12
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Ásrúnar Bjargar Sveinsdóttur þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús á lóðinni við Blómsturvelli 18 á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
Bæjarstjórn, fundur 311 liður 2.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 706“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.