Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 285

22. mars 2021, kl. 16:30 til 17:10, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Magnús Karl Ásmundsson, varamaður
  • Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 309 liður 7

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 22. mars sl., staðfest með 8 atkvæðum.

    Rúnar Már Gunnarsson var fjarverandi afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Deiliskipulag Eskifjörður-Miðbær, breyting, Lambeyrarbraut, vistgata og ný lóð

    Mál 2101072 Allur ferill málsins

    Auglýsingartími vegna breytingar deiliskipulagsins Eskifjörður-miðbær er liðinn. Tvær athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna athugasemda, dagsett 19. mars 2021. Umsagnir frá Veðurstofu, Lögreglunni, Minjastofnun Íslands og HAUST liggja fyrir án athugasemda.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti breytingu deiliskipulagsins Eskifjörður-Miðbær. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  2. 2. 735 Lambeyrarár- Framkvæmdaleyfi, ofanflóðavarnir

    Mál 2011071 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Héraðsverks ehf um tímabundin afnot af lóðinni við Strandgötu 38 á Eskifirði sem geymslusvæði á meðan framkvæmdir vegna ofanflóðavarna í Lambeyrará standa yfir. Fyrirhugað er að geyma ýmis aðföng á svæðinu. Samkvæmt framkvæmdaleyfi er gert ráð fyrir geymslusvæði vegna framkvæmdanna innan við byggðina á Eskifirði og við Oddsskarðsveg ofan byggðarinnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur sviðsstjórum framkvæmdasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs að ræða við verktaka.

  3. 3. 740 Nesgata - Umsókn um lóð undir bílastæði og skúr

    Mál 2102111 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Ingrid Karis, dagsett 16. febrúar 2021, þar sem sótt er um lóð undir bílastæði og smáhýsi gegnt húsinu við Nesgötu 32 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt úthlutun lóðar undir bílastæði og smáhýsi ótengdri lóð hússins.

  4. 4. 740 Blómsturvellir 18 - Umsókn um lóð

    Mál 2103035 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Ásrúnar Bjargar Sveinsdóttur, dagsett 3. mars 2021, þar sem sótt er um lóð undir einbýlishús á lóðinni við Blómsturvelli 18 á Norðfirði. Svæðið er ódeiliskipulagt. Samkvæmt aðalskipulagi er umrætt svæði innan skilgreindrar íbúðabyggðar þar sem gert er ráð fyrir nýbyggingum sem falla að nýtingu, yfirbragði og þéttleika núverandi byggðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  5. 5. 730 Búðarmelur 6a-e - Umsókn um byggingarleyfi, raðhús

    Mál 2103116 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Nýjatúns ehf, dagsett 12. mars 2021, þar sem sótt er um leyfi til að byggja fimm íbúða raðhús á lóðinni við Búðarmel 6a-e á Reyðafirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  6. 6. 750 Búðavegur 28 - Umsókn um byggingarleyfi, breyting innanhúss

    Mál 2103089 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Leva Vedeikaite, dagsett 11. mars 2021, þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun bílskúrs á lóð hans að Búðavegi 28 á Fáskrúðsfirði í íbúðarrými.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  7. 7. Erindi varðandi skólalóð Eskifjarðarskóla

    Mál 2103163 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Páls Birgis Jónssonar, dagsett 18. mars 2021, varðandi aðbúnað á skólalóð Eskifjarðarskóla og aðstöðu til körfubolta iðkunar á lóðinni.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið. Erindinu ásamt tillögu Íbúasamtaka Eskifjarðar að bættri körfuboltaaðstöðu á lóð Grunnskóla Eskifjarðar er vísað til skoðunar í fjárhagsáætlunargerð.