740 Nesgata - Umsókn um lóð undir bílastæði og skúr
Mál 2102111 Fyrst á dagskrá 22. mars 2021, síðast 25. mars 2021. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 285 liður 3
Lögð fram lóðarumsókn Ingrid Karis, dagsett 16. febrúar 2021, þar sem sótt er um lóð undir bílastæði og smáhýsi gegnt húsinu við Nesgötu 32 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt úthlutun lóðar undir bílastæði og smáhýsi ótengdri lóð hússins.
-
Bæjarstjórn, fundur 309 liður 7.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 285“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.