Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 260

30. mars 2021, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 707 liður 15

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 260 frá 30. mars, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 311 liður 5

    Til máls tók Sigurður Ólafsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. mars sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Leyfi til umskipunar olíu - Vermland

    Mál 2103001 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar þar sem stofnunin tilkynnir að veitt hafi verið leyfi til umskipunar olíu frá flutningaskipi yfir í fóðurpramma í Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn lýsir furðu yfir og gerir athugasemdir við að leyfi til umskipunar olíu innan skilgreinds hafnarsvæðis Fjarðabyggðarhafna skuli veitt án samráðs við hafnaryfirvöld í Fjarðabyggð. Verkefnastjóra hafna er falið að afla frekari gagna og rökstuðnings frá Umhverfisstofnun vegna málsins. Jafnframt er málinu vísað til kynningar í Hafnasambandi Íslands vegna mögulegs fordæmisgildis.

  2. 2. Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn

    Mál 2101111 Allur ferill málsins

    Lögregla og Tollgæsla hafa óskað eftir því að fá aðgang að streymi öryggismyndavéla á Mjóeyrarhöfn. Á 258.fundi hafnarstjórnar var óskað eftir rökstuðningi frá lögreglunni og áliti frá persónuverndarfulltrúa áður en ákvörðun yrði tekin í málinu.

    Lögð fram bréf lögreglu og tollayfirvöldum ásamt minnisblaði persónuverndarfulltrúa.

    Hafnarstjórn frestar afgreiðslu málsins þar til lögfræðiálit hefur borist.

  3. 3. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram niðurstaða verðkönnunar í forsteyptar þybbueiningar, akkerisplötur og uppsetningu stormpolla. Hafnarstjórn samþykkir verkefnið og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs frágang málsins.

  4. 4. Grjótvarnir í Fjarðabyggð

    Mál 2103194 Allur ferill málsins

    Grjótvarnir í Fjarðabyggð eru á samgönguáætlun fyrir þetta ár. Lagðar fram upplýsingar frá Vegagerðinni. Hafnarstjórn samþykkir að fara í framkvæmdina og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ganga frá samningi við Vegagerðina. Kostnaði verður mætt af liðnum óráðstafað í fjárhagsáætlun.

  5. 5. Tryggingar Fjarðabyggðarhafna

    Mál 2103200 Allur ferill málsins

    Tryggingar Fjarðabyggðarhafna ræddar. Tímabært er að endurskoða skilmála og fleira varðandi tryggingar hafnanna. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að fara yfir tryggingar Fjarðabyggðarhafna í sambandi við heildarsamning sveitarfélagsins og samráði við TM.

  6. 6. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2021

    Mál 2101212 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 433. fundar Hafnasambands Íslands

  7. 7. Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2020

    Mál 2103183 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Hafnasambands Íslands lagður fram til kynningar

  8. 8. Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2021

    Mál 2103094 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar ársreikningur Fiskmarkaðs Austurlands

  9. 9. Aðalfundur Cruise Iceland 2021

    Mál 2103193 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til aðalfundar Cruise Iceland 2021 sem haldinn verður 3.júní í Vestmannaeyjum, ef samkomutakmarkanir leyfa. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn.