Riftun kaupsamnings um Kirkjustíg 7
Mál 2007051 Fyrst á dagskrá 27. júlí 2020, síðast 25. mars 2021. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 672 liður 3
Kauptilboð í Kirkjustíg 7 frá Helgu Bjarnason
Framlagt tilboð í húseignina Kirkjutíg 7 á Eskifirði. Húsið er selt til flutnings en það var keypt vegna ofanflóðavarna þar sem til stóð að rífa húsið ef það seldist ekki. Bæjarráð hefur áður samþykkt tilboðið í tölvupóstsamskiptum og staðfestir nú endanlega framlagt tilboð og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
-
Bæjarstjórn, fundur 295 liður 4.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 672“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Kauptilboð í Kirkjustíg 7 frá Helgu Bjarnason
-
2021
Bæjarráð, fundur 703 liður 10
Kaupandi Kirkjustígs 7 á Eskifirði óskar eftir að rifta kaupsamningi um fasteignina. Húsið var keypt til flutnings en kaupandinn er hættur við. Húsið þarf að fjarlægja vegna ofanflóðaframkvæmda við Lambeyrará.
Bæjarráð samþykkir að taka húsið til sín og rifta kaupsamningi. Framkvæmdasviði falið að rífa húsið sem hluta af ofanflóðaframkvæmdum við Lambeyrará.
-
Bæjarstjórn, fundur 309 liður 3.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 703“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.