Hafnarstjórn, fundur 256
26. janúar 2021, kl. 16:00 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 698 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 256 frá 26. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 306 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. janúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindi vegna áforma um innheimtu vörugjalds
Mál 2101157 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi vegna áforma um innheimtu vörugjalds af umskipun á fóðri á sjó. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að vinna að málinu áfram og leggja fyrir að nýju.
-
2. Deiliskipulag, Eskifjörður-Útkaupstaður
Mál 2009211 Allur ferill málsins
Í tengslum við deiliskipulagsgerð óskar eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd eftir umsögn hafnarstjórnar vegna landnotkunar neðan Strandgötu 38 til 42 á Eskifirði í kjölfar þess að frystihús og tengd starfsemi eru víkjandi á svæðinu. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að koma umsögn til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á grundvelli umræðna á fundinum. Hafnarstjórn leggur áherslu á að gætt verði að athafnasvæði hafnar í skipulagi.
-
3. Aðgangskerfi og myndavélar á Mjóeyrarhöfn
Mál 2101111 Allur ferill málsins
Aðgangs- og myndavélakerfis Mjóeyrarhafnar þarfnast endurnýjunar. Lögð fram tillaga að endurnýjun á kerfinu. Hafnarstjórn samþykkir að farið verði í endurnýjun á kerfinu og felur verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs undirbúning á því.
-
4. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Staurarekstur er hafinn í nýrri höfn á Eskifirði. Farið yfir stöðu framkvæmda og næstu skref. Áætluð verklok eru 5.febrúar.
-
5. Fóðurprammi sekkur við Gripalda
Mál 2101071 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála vegna fóðurpramma Laxa Fiskeldis ehf. sem sökk við Gripalda.
-
6. Drangur sekkur í Stöðvarfjarðarhöfn
Mál 2010176 Allur ferill málsins
Drangur ÁR-307 sem sökk í Stöðvarfjarðarhöfn í lok október síðastliðins liggur þar enn við bryggju. Farið yfir stöðuna.
-
7. Umsókn um leitar- og rannsóknarleyfi í Reyðarfirði
Mál 2004013 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar leyfi til leitar- og rannsókna á hafsbotni í Reyðarfirði sem Orkustofnun gaf út þann 15.janúar síðastliðinn. Verkefnastjóra hafna falin frekari vinnsla málsins.
-
8. 418. mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (atvinnu- og byggðakvótar o.fl.)
Mál 2101173 Allur ferill málsins
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða(atvinnu- og byggðakvótar o.fl.), 418. mál. Ef veita á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 10. febrúar 2021. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra og verkefnastjóra hafna að fara yfir frumvarpið og meta með umsögn eftir umræður á fundinum.
-
9. 419.mál - Frumvarp til laga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja)
Mál 2101174 Allur ferill málsins
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp tillaga breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu, sandkola og hryggleysingja), 419. mál. Ef senda á umsögn þarf hún að berast eigi síðar en 10. febrúar 2021. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra og verkefnastjóra hafna að fara yfir frumvarpið og meta með umsögn eftir umræður á fundinum.