Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 34

1. febrúar 2021, kl. 16:30 til 18:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Magnea María Jónudóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður
  • Jóhann Ágúst Jóhannsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 699 liður 10

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 1.febrúar lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 307 liður 3

    Fundargerðir menningar- og nýsköpunarnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 1. febrúar sl. staðfest með 8 atkvæðum. Rúnar Már Gunnarsson var ekki viðstaddur afgreiðslu dagskrárliðar vegna tæknilegra vandamála.

Dagskrá

  1. 1. Heimildamynd um Eistnaflug

    Mál 2011092 Allur ferill málsins

    Árið 2014 kom út heimildarmynd um Eistnaflug sem ber nafnið "Bannað að vera fáviti". Myndin fór í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu ásamt því að gefin var út vegleg DVD útgáfa sem innihélt fjóra DVD diska með níu klst. af afþreyingarefni um hátíðina, um níutíu lög, viðtöl við stofnendur hátíðarinnar, heimamenn og hljómsveitarmeðlimi. Óskað er eftir liðsinni frá menningar og nýsköpunarnefnd til að leita eftir styrkjum til að koma myndinni í sýningu á miðlum erlendis og á samfélagsmiðlum. Lagt fram minnisblað forstöðumanns menningarstofu eftir yfirferð hans með útgefanda myndarinnar. Menningar- og nýsköpunarnefnd styrkti myndina nokkuð á sínum tíma og hefur ekki tök á að styrkja myndina frekar með beinu fjárframlagi. Nefndin felur forstöðumanni menningarstofu að ræða málið við upplýsingafulltrúa til að kanna möguleika á nýtingu myndarinnar í markaðslegum tilgangi.

  2. 2. Sýningarvél í Egilsbúð

    Mál 2011091 Allur ferill málsins

    Erindi um verndun og geymslu Bauer B11 sýningarvélar ásamt fylgihlutum, sem staðsettir eru í Egilsbúð. Lagt fram minnisblað forstöðumanns safnastofnunar. Menningar- og nýsköpunarnefnd telur að ef ekki komi til sérstök not fyrir það rými sem vélin er staðsett í, sé ekki því til fyrirstöðu að vélin verði varðveitt í núverandi ástandi í rýminu. Forstöðumanni safnastofnunar falin áframhaldandi vinnsla málsins.

  3. 3. Umsókn um styrk vegna leiksýningar í Nesskóla

    Mál 2101138 Allur ferill málsins

    Beiðni Nesskóla um styrk vegna leiksýningar í Egilsbúð en fyrirhugað er að bjóða upp á rútuferðir fyrir gurnnskólabörn á leiksýninguna. Menningar- og nýsköpunarnefnd tekur vel í erindið og felur forstöðumanni stjórnsýslu að afla nánari upplýsinga um fjölda sýninga og sýningartíma.

  4. 4. Menningarstyrkir 2021

    Mál 2101186 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður menningarstofu kynnti fyrirkomulag menningarstyrkja 2021. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni að auglýsa menningarstyrki með sama fyrirkomulagi og á síðasta ári.

  5. 5. Áfangaskýrsla Menningarstofu vegna styrkja á árinu 2020

    Mál 2101202 Allur ferill málsins

    Lagt fram til upplýsinga minnisblað forstöðumanns menningarstofu um styrkveitingu hafnarstjórnar til verkefna Menningarstofu 2020.

  6. 6. 735 Strrandgata 98b - Umsókn um lóð

    Mál 2101035 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Péturs Karls Kristinssonar, dagsett 5. janúar 2021, þar sem óskað er efir lóð við hlið Strandgötu 98a undir Friðþjófshús sem nú stendur á lóðinni við Strandgötu 88 á Eskifirði. Umbeðið svæði er innan lóðarinnar við Strandgötu 98b. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur óskað umsagnar Sjóminjasafns Austurlands og menningar- og nýsköpunarnefndar vegna hugmynda um afmörkun lóðar undir Friðþjófshús á svæðinu. Menningar- og nýsköpunarnefnd fagnar fyrirhuguðum áætlunum bréfritara en óskar eftir nánari upplýsingum frá honum um hvað hann hyggst fyrir með húsið þegar flutningi þess og framkvæmdum við það lýkur. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að koma afstöðu nefndarinnar á framfæri við eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.