Heimildamynd um Eistnaflug
Mál 2011092 Fyrst á dagskrá 16. nóvember 2020, síðast 18. febrúar 2021. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Menningar- og nýsköpunarnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 33 liður 3
Árið 2014 kom út heimildarmynd um Eistnaflug sem ber nafnið "Bannað að vera fáviti". Myndin fór í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu ásamt því að gefin var út vegleg DVD útgáfa sem innihélt fjóra DVD diska með níu klst. af afþreyingarefni um hátíðina, um níutíu lög, viðtöl við stofnendur hátíðarinnar, heimamenn og hljómsveitarmeðlimi. Óskað er eftir liðsinni frá menningar og nýsköpunarnefnd til að leita eftir styrkjum til að koma myndinni í sýningu á miðlum erlendis og á samfélagsmiðlum. Forstöðumanni menningarstofu falið að yfirfara málið með útgefanda myndarinnar og leggja minnisblað fyrir nefndina á næsta fundi.
-
Bæjarráð, fundur 689 liður 10.3
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 33“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 302 liður 7.3
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 33“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2021
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 34 liður 1
Árið 2014 kom út heimildarmynd um Eistnaflug sem ber nafnið "Bannað að vera fáviti". Myndin fór í sýningu hjá Ríkissjónvarpinu ásamt því að gefin var út vegleg DVD útgáfa sem innihélt fjóra DVD diska með níu klst. af afþreyingarefni um hátíðina, um níutíu lög, viðtöl við stofnendur hátíðarinnar, heimamenn og hljómsveitarmeðlimi. Óskað er eftir liðsinni frá menningar og nýsköpunarnefnd til að leita eftir styrkjum til að koma myndinni í sýningu á miðlum erlendis og á samfélagsmiðlum. Lagt fram minnisblað forstöðumanns menningarstofu eftir yfirferð hans með útgefanda myndarinnar. Menningar- og nýsköpunarnefnd styrkti myndina nokkuð á sínum tíma og hefur ekki tök á að styrkja myndina frekar með beinu fjárframlagi. Nefndin felur forstöðumanni menningarstofu að ræða málið við upplýsingafulltrúa til að kanna möguleika á nýtingu myndarinnar í markaðslegum tilgangi.
-
Bæjarráð, fundur 699 liður 10.1
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 34“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 307 liður 3.1
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 34“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.