NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 280
25. janúar 2021, kl. 16:00 til 16:55, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Kristjana Guðmundsdóttir, varamaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 698 liður 12
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 280 frá 25. janúar, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 306 liður 3
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 25. janúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekin vinnugögn vegan svara íbúa, fyrirtækja og landeiganda við könnun vegna endurskoðunar aðalskipulags. Alls bárust 183 svör frá íbúum, 7 frá fyrirtækjum og 8 frá landeigendum. Ráðgjafi Alta fór yfir samantektina.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar góðri þátttöku íbúa og hagaðila, samantektin tekin áfram inn í áframhaldandi skipulagsvinnu.
-
2. 735 Strandgata 55 - Umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun, íbúð
Mál 2101120 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ásdísar Sigurðardóttur, dagsett 15. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun húsnæðis hennar að Strandgötu 55 á Eskifirði úr atvinnuhúsnæði í íbúð. Samþykki annarra eiganda hússins liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
3. 735 Strandgata 98b - Fyrirspurn um framtíðaráform
Mál 2101177 Allur ferill málsins
Lagður fram póstur Egils Helga Árnasonar, dagsettur 14. janúar 2021, þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvað bæjaryfirvöld hyggjast gera við lóðina við Strandgötu 98b á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að upplýsa bréfritara um fyrirhugaða notkun. Tilgangur kaupanna var að bæta umferðaröryggi og auka möguleika á uppbyggingu safnasvæðis í útbæ Eskifjarðar.