Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 141

12. janúar 2021, kl. 16:15 til 17:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 696 liður 15

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 12. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 305 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 12. janúar sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lokaskýrsla um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning

    Mál 2012132 Allur ferill málsins

    Kynnt er bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 17. desember 2020, ásamt lokaskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning. Samkvæmt skýrslunni er lagt til að almennar húsnæðisbætur ríkisins og sérstakur húsnæðisstuðningur sveitarfélaga verði sameinaður í eitt opinbert stuðningskerfi við leigjendur til að auka skilvirkni og bæta þjónustu við almenning.

    Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem tala fyrir samræmingu milli sveitarfélaga í þessum efnum og að þjónustuþegi geti sótt þjónustuna á einn stað í stað tveggja nú. Erfitt sé þó að taka afstöðu til hugmyndanna þar sem ekki er tekin afstaða til skiptingar kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga.

    Nefndin felur starfsmönnun nefndarinnar að vinna umsögn um framangreint og leggja fyrir næsta fund nefndarinnar.

  2. 2. 355.mál til umsagnar frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu,

    Mál 2012118 Allur ferill málsins

    Kynnt er beiðni um umsögn Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um Barna og fjölskyldustofu.

  3. 3. 356.mál til umsagnar frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála,

    Mál 2012120 Allur ferill málsins

    Kynnt er beiðni um umsögn Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

  4. 4. 354.mál til umsagnar frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna,

    Mál 2012117 Allur ferill málsins

    Kynnt er beiðni um umsögn Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

    Fram kemur að mikil vinna er í gangi í samfélaginu í tengslum við frumvarpið og innleiðingu þess, m.a. hjá Sambandinu. Nefndin óskar eftir að vera haldið upplýst um framgang málsins.

    Nefndin felur starfsmönnum fjölskyldusviðs að skoða sérstaklega helstu atriði frumvarpsins sem snertir sveitarfélögin og verkefni félagsþjónustunnar. Óskað er eftir umsögn þar að lútandi fyrir næsta fund nefndarinnar.

  5. 5. Félagsmálanefnd 2021

    Mál 2101054 Allur ferill málsins

    Kynnt er minnisblað starfsmanns nefndarinnar um fundartíma nefndarinnar 2021.

    Nefndin samþykkir framangreinda tillögu starfsmanns með þeirri breytingu að fundur í apríl 2021 verði þann 6. apríl 2021 og að ekki verður fundur í júlímánuði.