Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 140

15. desember 2020, kl. 16:15 til 17:20, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 693 liður 17

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 140 frá 15.desember, lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 304 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 15. desember sl.staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Reglur um félagslegt leiguhúsnæði

    Mál 2004147 Allur ferill málsins

    Framlögð eru minnisblað og drög að uppfærðum reglum um félagslegt leiguhúsnæði til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd.

    Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  2. 2. Reglur um akstursþjónustu við fatlað fólk

    Mál 2012034 Allur ferill málsins

    Framlögð eru drög að reglum ásamt minnisblaði um akstursþjónustu til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd.

    Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs. Í fjárhagsáætlun 2021 er gert ráð fyrir kostnaði sem hlýst af þeirri þjónustuaukningu sem má búast við með setningu reglnanna.

  3. 3. Reglur um stuðningsþjónustu

    Mál 2009002 Allur ferill málsins

    Framlögð eru drög að uppfærðum reglum um stuðningsþjónustu ásamt minnisblaði.

    Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  4. 4. Reglur Fjarðabyggðar um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn

    Mál 2012072 Allur ferill málsins

    Framlögð eru drög að reglum ásamt minnisblaði um þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir fötluð börn.

    Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  5. 5. Beiðni um fjárframlag til Kvennaráðgjafarinnar 2021

    Mál 2011206 Allur ferill málsins

    Framlögð er beiðni Kvennaráðgjafarinnar um fjárframlag vegna ársins 2021 til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd.

    Félagsmálanefnd hefur nú þegar ráðstafað fjárheimildum til styrktar félagasamtökum vegna ársins 2021 og því er beiðninni hafnað.

  6. 6. Vinnustaðagreining Fjölskyldusviðs

    Mál 2012105 Allur ferill málsins

    Niðurstöður vinnustaðagreiningar starfsmanna fjölskyldusviðs á skrifstofu kynntar í félagsmálanefnd.