Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 139

10. nóvember 2020, kl. 16:15 til 17:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur

    Mál 2009173 Allur ferill málsins

    Framlagðar eru reglur um niðurgreiðslu daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur ásamt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd.

    Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  2. 2. Íþrótta -og tómstundastyrkur ríkið

    Mál 2011009 Allur ferill málsins

    Framlögð eru drög að reglum Fjarðabyggðar um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki. Um er að ræða úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja til barna frá tekjulágum heimilum til að auka jöfnuð til íþrótta- og tómstundastarf, sbr. fjáraukalög fyrir árið 2020, sbr. og lög nr. 26/2020, um afmarkaðar og tímabundnar ráðstafanir til að bregðast við áhrifum COVID-19 faraldursins.

    Félagsmálanefnd samþykkir reglur um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021

    Mál 2005022 Allur ferill málsins

    Bréf til byggðarsamlags B hluta, málefna fatlaðs fólks, kynnt félagsmálanefnd.

  4. 4. Viðbragðsáætlanir COVID

    Mál 2003072 Allur ferill málsins

    Gildandi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar hefur áhrif á starfsemi fjölskyldusviðs. Félagsmálastjóri og sviðsstjóri fjölskyldusviðs greina frá fyrirkomulagi starfseminnar á meðan reglugerðin er í gildi.