Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 138

13. október 2020, kl. 16:15 til 17:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 684 liður 26

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 138 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 300 liður 11

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 13. október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

  • Bæjarráð, fundur 688 liður 19

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 138 frá 10.nóvember, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 301 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 139 frá 10.nóvember, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Leikskólamál

    Mál 2009173 Allur ferill málsins

    Til umræðu voru málefni barna sem náð hafa 12 mánaða aldri en af einhverjum orsökum komast ekki inn í leikskóla í byggðarkjarnanum þar sem barnið á lögheimili. Þegar slík tilfelli hafa komið upp hefur sveitarfélagið boðið börnum upp á leikskólavistun í nálægum byggðarkjörnum og einnig hefur verið auglýst eftir dagforeldrum í viðkomandi byggðarkjarna. Fræðslunefnd hefur skoðað þriðja möguleikann, þ.e. að foreldrum bjóðist tímabundnar foreldragreiðslur, sem falla niður ef barninu býðst vistun í leikskóla eða vistun hjá dagforeldri í þeim byggðarkjarna þar sem barnið á lögheimili. Fyrir liggja drög að breytingum á reglum um dagvistun barna í heimahúsi, þar sem foreldragreiðslum er bætt við sem úrræði. Fræðslunefnd vill jafnframt ítreka mikilvægi þess að börn fái leikskólavistun frá 12 mánaða aldri og því hefur sveitarfélagið unnið að stækkun leikskólahúsnæðis undanfarin ár með góðum árangri, þannig að í flestum tilfellum hafa leikskólarnir geta tekið inn börn um leið og þau verða 12 mánaða. Fræðslunefnd líst vel á drögin og vísar þeim til félagsmálanefndar til frekari umræðu og samþykktar. Félagsmálanefnd samþykkir drögin og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ganga frá reglunum og leggja fyrir bæjarráð.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021

    Mál 2005022 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar lögð fram til umræðu og meðferðar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  3. 3. Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2021

    Mál 2009001 Allur ferill málsins

    Framlögð er styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2021. Félagsmálanefnd samþykkir að styrkja Aflið um 150.000 kr. á árinu 2021.

  4. 4. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 20. fundar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna tekin á dagskrá með samþykki fundarmanna og lögð fram til kynningar í félagsmálanefnd.

    1. 4.1 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2021
    2. 4.2 Endurnýjun húsnæðis Uppsala