Félagsmálanefnd, fundur 137
29. september 2020, kl. 16:15 til 17:45, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
- Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
- Valdimar Másson, aðalmaður
- Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Jóhann Óskar Þórólfsson, varamaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 681 liður 17
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 137 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 299 liður 8
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 29. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2021
Mál 2005022 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi launaáætlun og vísar til bæjarráðs. Nefndin felur félagsmálastjóra að halda áfram vinnu við starfs-og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar.
-
2. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2021 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn
Mál 2009116 Allur ferill málsins
Gjaldskrá vegna greiðslna til stuðningsfjölskyldna frá 1.1.2021 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu félagsmálanefndar ásamt minnisblaði félagsmálastjóra og stjórnanda barnaverndar. Félagsmálanefnd samþykkir gjaldskrá vegna greiðslna til stuðningsfjölskyldna fyrir sitt leyti enda rúmast breytingarnar innan fjárhagsramma félagsmálanefndar 2021. Félagsmálanefnd vísar málinu til bæjarráðs.
-
3. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2021
Mál 2009135 Allur ferill málsins
Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðabliki Neskaupstað ásamt minnisblaði félagsmálastjóra lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu nefndar. Lagt er til að gjaldskrá hækki um 2,4% sem nemur almennum verðlagsbreytingum. Félagsmálanefnd samþykkir gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðabliki vegna ársins 2021 fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
-
4. Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2021
Mál 2009131 Allur ferill málsins
Gjaldskrá stuðningsþjónustu ásamt minnisblaði félagsmálastjóra lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu nefndar. Lagt er til að gjaldskrá hækki um 2,4% eða sem nemur almennum verðlagsbreytingum. Félagsmálanefnd samþykkir gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu 2021 fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.
-
5. Reglur um stuðningsþjónustu
Mál 2009002 Allur ferill málsins
Bæjarráð hefur samþykkt reglur um stuðningsþjónustu fyrir sitt leyti og vísað þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar jafnframt til sviðsstjóra fjölskyldusviðs og félagsmálanefndar endurskoðun á hlutaðeigandi gjaldskrám vegna breytinga sem nýjar reglur fela í sér og leysa eldri reglur af. Félagsmálanefnd hefur endurskoðað gjaldskrár og samþykkt nýja gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu sem vísað hefur verið til bæjarráðs.
-
6. Rekstur hjúkrunarheimila 2020
Mál 2004084 Allur ferill málsins
Vísað frá Framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna:
Farið yfir fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilana. Lögð fram greinargerð framkvæmdastjóra um rekstur heimilanna og fjárþörf út rekstrarárið. Í greinargerðinni kemur fram að fjárþörf Hulduhlíðar er um 14 m.kr. og Uppsala um 16. m.kr. eða samtals 30 m.kr. Framkvæmdaráðið samþykkir að nauðsynlegt sé að veita þennan fjárstuðning til heimilanna og vísar til bæjarráðs til afgreiðslu. Félagsmálanefnd hefur þegar samþykkt erindið.
-
7. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 19
Fundargerð 19. fundar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna kynnt í félagsmálanefnd.
- 7.1 Uppsögn á samningum um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala 2020-2021
- 7.2 Rekstur hjúkrunarheimila 2020
- 7.3 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2021
- 7.4 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020