Bæjarráð, fundur 681
5. október 2020, kl. 08:30 til 12:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 299 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráð frá 5. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Úttekt á skipulagi og rekstri 06 Íþrótta- og æskulýðsmála
Mál 2007060 Allur ferill málsins
Fulltrúar Ráðríks sátu þennan lið fundarins í fjarfundi og fóru yfir vinnu við úttekt á málaflokki íþrótta- og tómstundamála.
Stefnt er að skilum vinnu í næstu viku.
-
2. Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
Mál 2001211 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Brú lífeyrissjóði ásamt minnisblaði er varðar breytingar á réttindaákvæðum Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar. Um er að ræða tvær breytingar sem lagðar eru fyrir bæjarstjórn og starfsmannafélag til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingarnar og vísar staðfestingu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
3. Endurnýjun húsnæðis Uppsala
Mál 1904082 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur frá Heilbrigðisráðuneytinu um að breytingar og endurnýjun á húsnæði Uppsala falli undir málefni Framkvæmdasjóðs aldraðra en ekki framkvæmdaáætlun ráðuneytisins.
Bæjarráð getur ekki tekið undir skilgreiningu Heilbrigðisráðuneytisins. Bæjarstjórn hefur engu að síður staðfest uppsögn á samningum um hjúkrunarheimilin í Fjarðbyggð og vísar bæjarráð málinu til frekari viðræðna þar að lútandi við ráðuneytið.
-
4. Vatnstjón á Eyrarstíg 1
Mál 1801118 Allur ferill málsins
Lagðar fram greinargerðir og álit lögmanna vegna Eyrarstígs 1 Reyðarfirði.
Bæjarstjóri fór yfir vinnslu málsins.
-
5. Kauptilboð í Nesbakka 21 2. hæð 5-6 herb Neskaupstað
Mál 2010008 Allur ferill málsins
Framlagt kauptilboð í íbúð að Nesbakka 21 í Neskaupstað, 5 til 6 herbergja - íbúð á 2. hæð, merkt 0204.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að gera gagntilboð.
-
6. Sýnileiki Fjarðabyggðar 2020
Mál 2006023 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra vegna sýnileika sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra og upplýsingafulltrúa að setja sig í samband við fyrirtæki í Fjarðabyggð með verkefnið og hvernig þau geta nýtt sér það.
-
7. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð
Mál 1904072 Allur ferill málsins
Umræður um stöðu almenningssamgangna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu áfram.
-
8. Erindisbréf safnanefndar
Mál 1806133 Allur ferill málsins
Umræða um stöðu safnanefndar.
Bæjarráð samþykkir að safnanefnd verði lögð niður og verkefni hennar sameinuðu verkefnum menningar- og nýsköpunarnefndar. Bæjarstjóra falið að útfæra breytingar. Vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefndar og safnanefnd. Vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
-
9. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
Mál 2002033 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar sambandsins frá 29.september lögð fram til kynningar.
-
10. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021 - 2024
Mál 2005017 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu á vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2021 og 3ja ára áætlun 2022 - 2024.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerðina.
-
11. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021
Mál 2005025 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu vinnu við fjárhagsáætlun 2021 fyrir málaflokka atvinnumála og sameiginlegs kostnaðar.
-
12. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021
Mál 2005019 Allur ferill málsins
Formaður gerir grein fyrir vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka menningar- og nýsköpunarnefndar.
Vísað til áframhaldandi fjárhagsáætlunargerðar.
-
13. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2021
Mál 2005021 Allur ferill málsins
Formaður gerir grein fyrir vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka barnaverndarnefndar.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerðina.
-
14. Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
Mál 2005023 Allur ferill málsins
Formaður gerir grein fyrir vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka íþrótta- og tómstundamála.
Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerðina.
-
15. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022
Mál 1806029 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri taki sæti Karls Óttar Péturssonar fyrrverandi bæjarstjóra í eftirfarandi stjórnum og samstarfsverkefnum.
Strætisvagnar Austurlands
Breiðdalssetur
Háskóla Austurlands
Þá taki bæjarritari sæti varamanns í Breiðdalssetri.
-
16. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 19
Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna nr. 19 lögð fram til afgreiðslu.
- 16.1 Uppsögn á samningum um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala 2020-2021
- 16.2 Rekstur hjúkrunarheimila 2020
- 16.3 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2021
- 16.4 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
-
17. Félagsmálanefnd - 137
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 137 lögð fram til afgreiðslu.
- 17.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
- 17.2 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2021 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn2009116
- 17.3 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20212009135
- 17.4 Gjaldskrá stuðningsþjónustu 20212009131
- 17.5 Reglur um stuðningsþjónustu2009002
- 17.6 Rekstur hjúkrunarheimila 20202004084
- 17.7 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 192009020F
-
18. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 31
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 31 lögð fram til afgreiðslu.
- 18.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20212005019
- 18.2 Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 20202006114
- 18.3 Málþing um súðbyrðinginn2009198
- 18.4 Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 20212009197
- 18.5 Gjaldskrá bókasafna 20212009136
- 18.6 Gjaldskrá safna 2021 til 20222009137