Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 31

28. september 2020, kl. 17:00 til 18:25, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Pétur Þór Sörensson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 681 liður 18

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 31 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 299 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 28. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2021

    Mál 2005019 Allur ferill málsins

    Rammar að fjárhagsáætlun 2021 fyrir málaflokkinn menningarmál. Menningar- og nýsköpunarnefnd fól formanni og bæjarritara á fundi 7.september, að vinna að fjárhagsáætlunargerð fyrir málaflokkinn og leggja fyrir nefndina að nýju. Lögð fram minnisblöð um fjárhagsramma menningarmála, atvinnu-, ferða- og markaðsmála og almennt um fjárhagsáætlunargerðina. Ætlunin var að bæjarráð fundaði með formönnum nefnda í vikunni um áherslur, gjaldskrár og starfsáætlanir. Stefnt er að lokafrágangi áætlunar fyrri hluta október.

  2. 2. Breytingar á stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. á árinu 2020

    Mál 2006114 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 14. september. Einnig lagðar fram tillögur um breytingar á stofnsamningi byggðasamlagsins sem voru samþykktar á stjórnarfundum í júní og september. Óskað er eftir að svör um stofnsamninginn berist í síðasta lagi þann 20.október. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni safnastofnunar að afla nánari upplýsinga frá Héraðsskjalasafni og upplýsa nefndina á næsta fundi.

  3. 3. Málþing um súðbyrðinginn

    Mál 2009198 Allur ferill málsins

    Norræni súðbyrðingurinn hefur verið tilnefndur á lista heimsminjaskrár UNESCO. Lagður fram tölvupóstur frá Vitafélaginu - Íslensk strandmenning, er varðar málþing um súðbirðinginn - norræna trébátinn - sem fyrirhugað er að halda í Fjarðabyggð eftir áramótin. Menningar- og nýsköpunarnefnd tekur vel í erindið og mun taka þátt í skipulagningu viðburðarins eins og aðstæður leyfa.

  4. 4. Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöðvarfirði 2021

    Mál 2009197 Allur ferill málsins

    Félag áhugafólks um fornleifarannsóknir í Stöðvarfirði óskar eftir að Fjarðabyggð styrki rannóknarverkefnið í Stöð um eina milljón, líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að veita umbeðinn styrk og fagnar áframhaldandi vinnu við fornleifarannsóknir í Stöðvarfirði.

  5. 5. Gjaldskrá bókasafna 2021

    Mál 2009136 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá bókasafna lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu nefndar. Taka þarf ákvörðun um breytingu á gjaldskrá eða að óbreytt gjaldskrá gildi frá 1.janúar 2021. Menningar- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarráð að gjaldskrá bókasafna verði óbreytt á árinu 2021.

  6. 6. Gjaldskrá safna 2021 til 2022

    Mál 2009137 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá safna fyrir árið 2022 lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu nefndar. Menningar- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarráð að aðgangseyrir að söfnum hækki um 100 kr. í öllum gjaldhópum milli áranna 2021 og 2022.