Rekstur hjúkrunarheimila 2020
Mál 2004084 Fyrst á dagskrá 27. apríl 2020, síðast 15. október 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Velferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 661 liður 9
Vísað frá framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna rekstrarlegri stöðu hjúkrunarheimilanna m.t.t. stöðu þeirra í dag og niðurstöðu rekstrarins 2019. Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra um rekstrarlega stöðu heimilanna í apríl 2020 og tillögu um beiðni til Fjarðabyggðar um framlag til rekstrarins á árinu. Fram kemur í minnisblaðinu að Hulduhlíð þarf strax 10 m.kr. framlag frá Fjarðabyggð og Uppsalir 22 m.kr. Að öðru óbreyttu þarf síðar á árinu að bæta samsvarandi fjárhæðum við til að mæta fyrirsjáanlegum rekstrarvanda á árinu 2020. Framkvæmdaráðið óskar eftir við bæjarráð að veitt verði sérstakt framlag til rekstrar heimilanna að fjárhæð 32 m.kr. á næstu vikum í samræmi við minnisblað framkvæmdastjóra
Lesa alla bókunina (99 orð til viðbótar)
Bæjarráð samþykkir að veita fjármagni að fjárhæð 32 milljónir kr. til reksturs hjúkrunarheimilanna og felur fjármálastjóra að leggja fyrir viðauka við fjárhagsáætlun 2020. Jafnframt er framkvæmdastjóra falið að leita allra leiða til hagræðingar í rekstri.
Bæjarráð getur ekki unað við að rekstrarvandi hjúkrunarheimilanna lendi á rekstri sveitarfélagsins og ítrekar fyrri samþykktir sínar um að ríkið axli ábyrgð sína á rekstri þeirra. Þá minnir bæjarráð á ósamræmi það sem ríkjandi er þar sem rekstur hjúkrunarheimila í nágrannasveitarfélögum er fjármagnaður beint af ríkisframlögum. Fundir sem haldnir hafa verið með ráðherra heilbrigðismála og þingmönnum hafa ennþá engum árangri skilað sem er óviðunandi.
-
Bæjarstjórn, fundur 291 liður 3.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 661“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Félagsmálanefnd, fundur 137 liður 6
Vísað frá Framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna:
Farið yfir fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilana. Lögð fram greinargerð framkvæmdastjóra um rekstur heimilanna og fjárþörf út rekstrarárið. Í greinargerðinni kemur fram að fjárþörf Hulduhlíðar er um 14 m.kr. og Uppsala um 16. m.kr. eða samtals 30 m.kr. Framkvæmdaráðið samþykkir að nauðsynlegt sé að veita þennan fjárstuðning til heimilanna og vísar til bæjarráðs til afgreiðslu. Félagsmálanefnd hefur þegar samþykkt erindið.
-
Bæjarráð, fundur 681 liður 17.6
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 137“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 299 liður 8.6
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 137“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.