Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 661

27. apríl 2020, kl. 08:30 til 11:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 291 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 27. apríl sl. utan liðar 3.9. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Framlögð greining sviðsstjóra á stöðu framkvæmda- og viðhaldsáætlunar Fjarðabyggðar og stofnana vegna ársins 2020 og verkefna sem framundan eru á sumarmánuðum.

    Sviðsstjóri framkvæmdasviðs og fjármálastjóri gera grein fyrir stöðunni.

    Framlagt og kynnt. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  2. 2. Vegalengdir í þéttbýli - umsókn um snjómokstur í þéttbýli

    Mál 2004065 Allur ferill málsins

    Framlögð samantekt fjármálastjóra á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga vegna snjómoksturs.

    Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Staða framkvæmda árið 2020

    Mál 2004118 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði um stöðu framkvæmda á árinu 2020 og framhald framkvæmda til að ljúka endurbóta hússins. Óskað er eftir að eftirstöðvar framlags Fjarðabyggðar að fjárhæð 5 milljónir kr. verði greiddar út á árinu. Jafnframt er óskað afstöðu til þess að Fjarðabyggð fjármagni framkvæmdir sem eftir standa við húsið.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og felur framkvæmdasviði að meta stöðu framkvæmda m.v. upphaflegar áætlanir og leggja fyrir bæjarráð að nýju í samráði við bæjarritara. Jafnframt yrði lagt mat á mögulega fjármögnun framkvæmda sem eftir eru.

  4. 4. 730 Búðarmelur 6-16 - Umsókn um lóð

    Mál 2004061 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lóðarumsókn Nýjatúns ehf, dagsett 15. apríl 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Búðarmel 6 a til 6 e á Reyðarfirði undir 425 fm og 1063 rm raðhús.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  5. 5. 750 Gilsholt 6-16 - Umsókn um lóð

    Mál 2004062 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Nýjatúns ehf, dagsett 15. apríl 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Gilsholt 6-16 á Fáskrúðsfirði undir 480 fm og 1200 rm raðhús. Jafnframt er óskað eftir að heimild til niðurfellingar 100% gatnagerðargjalda gildi fyrir þessa framkvæmd.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni. Jafnframt er veitt niðurfelling á gatnagerðargjaldi með vísan til 12. gr. gjaldskrár gatnagerðargjalda en gatan er frágengin utan þess að bundið slitlag er ekki á allri götunni.

  6. 6. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar

    Mál 1908022 Allur ferill málsins

    Formleg umræða átti sér ekki stað á íbúafundi á Reyðarfirði um stöðu sundlaugar 3. mars sl.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir stöðu sundlaugar til skólasunds að nýju og leggja hugsanlegar lausnir fyrir bæjarráð þar sem ákveðið hefur verði að fara í byggingu nýs íþróttahúss. Starfshópur er nú þegar að störfum fyrir byggingu á nýju íþróttahúsi á Reyðarfirði.

  7. 7. Eistnaflug 2020

    Mál 2001243 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðarins.

    Framlagt bréf f.h. Millifótakonfekts ehf. vegna Eistnaflugs 2020 en staða hátíðarinnar er óljós vegna Covid-19. Óskað eftir svari sveitarfélagsins um hvort það sé reiðubúið að taka þátt í Eistnaflugi í óbreyttri mynd eða hvort það mælist til að hátíðinni í ár verði frestað.

    Bæjarráð felur bæjarritara og formanni menningar- og nýsköpunarnefndar að ræða við bréfritara um hátíðarhöldin með tilliti til ráðlegginga og fyrirmæla aðgerðarstjórna og sóttvarnarlæknis. Jafnframt er bæjarritara falið að skoða framkvæmd hátíðahalda á sjómannadaginn og 17. júní nk. í samráði við forsvarsmenn hátíðanna.

  8. 8. 643.mál til umsagnar frumvarp um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-2025

    Mál 2004121 Allur ferill málsins

    Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp um skipulagðar forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-2025, mál 643. Forvarnirnar verði samþættar kennslu og skólastarfi á öllum skólastigum og eigi sér einnig stað á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum, í íþrótta- og æskulýðsstarfi og öðru tómstundastarfi. Umsögn þyrfti að berast eigi síðar en 6. maí

    Bæjarráð samþykkir að fela mannauðsstjóra að veita umsögn. Jafnframt er erindi vísað til sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

  9. 9. Rekstur hjúkrunarheimila 2020

    Mál 2004084 Allur ferill málsins

    Vísað frá framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna rekstrarlegri stöðu hjúkrunarheimilanna m.t.t. stöðu þeirra í dag og niðurstöðu rekstrarins 2019. Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra um rekstrarlega stöðu heimilanna í apríl 2020 og tillögu um beiðni til Fjarðabyggðar um framlag til rekstrarins á árinu. Fram kemur í minnisblaðinu að Hulduhlíð þarf strax 10 m.kr. framlag frá Fjarðabyggð og Uppsalir 22 m.kr. Að öðru óbreyttu þarf síðar á árinu að bæta samsvarandi fjárhæðum við til að mæta fyrirsjáanlegum rekstrarvanda á árinu 2020. Framkvæmdaráðið óskar eftir við bæjarráð að veitt verði sérstakt framlag til rekstrar heimilanna að fjárhæð 32 m.kr. á næstu vikum í samræmi við minnisblað framkvæmdastjóra

    Bæjarráð samþykkir að veita fjármagni að fjárhæð 32 milljónir kr. til reksturs hjúkrunarheimilanna og felur fjármálastjóra að leggja fyrir viðauka við fjárhagsáætlun 2020. Jafnframt er framkvæmdastjóra falið að leita allra leiða til hagræðingar í rekstri.

    Bæjarráð getur ekki unað við að rekstrarvandi hjúkrunarheimilanna lendi á rekstri sveitarfélagsins og ítrekar fyrri samþykktir sínar um að ríkið axli ábyrgð sína á rekstri þeirra. Þá minnir bæjarráð á ósamræmi það sem ríkjandi er þar sem rekstur hjúkrunarheimila í nágrannasveitarfélögum er fjármagnaður beint af ríkisframlögum. Fundir sem haldnir hafa verið með ráðherra heilbrigðismála og þingmönnum hafa ennþá engum árangri skilað sem er óviðunandi.

  10. 10. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020

    Mál 1909177 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs breytingu á gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrá hafnarsjóðs.

  11. 11. Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf

    Mál 2003122 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur að aðgerðum til viðspyrnu vegna efnahagslegra áhrifa af Covid 19 faraldri. Mikilvægur þáttur í viðspyrnunni er að tryggja að atvinnuleysi í sumar verð lágmarkað m.a. með tímabundnum ráðningum til Fjarðabyggðar. Framlagt minnisblað fjármálastjóra um hugmyndir að aðgerðum vegna sumarstarfa og sumarverkefna.

    Bæjarráð felur sviðsstjórum að vinna áfram að aðgerðum og auglýst verði störf sem lögð eru til í minnisblaði. Jafnframt er fjármálastjóra falið að sækja um styrki til starfanna sbr. átak ríkisins vegna viðspyrnu vegna efnahagslegra áhrifa COVID 19 faraldursins. Staða átaksins verði lögð fyrir bæjarráð að nýju þegar endanleg niðurstaða liggur fyrir.

  12. 12. Styrkur til Blakdeildar Þróttar í tilefni af deildarmeistaratitli

    Mál 2004123 Allur ferill málsins

    Þann 20. mars sl. varð Blakdeild Þróttar Neskaupstað deildarmeistari í úrvalsdeild karla í blaki.

    Bæjarráð óskar blakdeildinni hjartanlega til hamingju með meistaratitilinn og veitir deildinni 200.000 kr. styrk. Tekið af liðnum óráðstafað.

  13. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 257

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 20. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 13.1 Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar1606124
    2. 13.2 Garð- og malarefni1609089
    3. 13.3 Umsókn um garðefnasvæði á Reyðarfirði2004026
    4. 13.4 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20191909098
    5. 13.5 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20202004049
    6. 13.6 730 Búðarmelur 6-16 - Umsókn um lóð2004061
    7. 13.7 750 Gilsholt 6-16 - Umsókn um lóð2004062
    8. 13.8 730 Búðareyri 11-13 Byggingarleyfi, breyting innanhúss2004039
    9. 13.9 730 Þernunes - byggingarleyfi, fjárhús2004067
    10. 13.10 740 Miðstræti 23 - byggingarleyfi, sameining íbúða2001095
    11. 13.11 735 Kirkjustígur 7 - byggingarleyfi, niðurrif2004091
    12. 13.12 735 Kirkjustígur 3b - byggingarleyfi, niðurrif2004092
    13. 13.13 735 Túngata 13 - byggingarleyfi, niðurrif2004090
    14. 13.14 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
    15. 13.15 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
  14. 14. Hafnarstjórn - 241

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 14.1 COVID-19 - Leiðbeiningar og viðbragðsáætlanir hafna2003077
    2. 14.2 Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf2003122
    3. 14.3 Orkuskipti í höfnum2004042
    4. 14.4 Mjóeyrarhöfn, fylling annar áfangi 20202004076
    5. 14.5 Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID192002090
    6. 14.6 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20201909177
    7. 14.7 Framkvæmdir hafnarsjóðs 20202002025
    8. 14.8 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
  15. 15. Íþrótta- og tómstundanefnd - 71

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 17. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 15.1 Eskifjarðarhöfn - stækkun
  16. 16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 72

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

    1. 16.1 Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni
    2. 16.2 Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf
    3. 16.3 Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID19
    4. 16.4 Íþróttahreyfingin og COVID-19
    5. 16.5 Áhrif Covid-19 á starfssemi íþróttafélaga í Fjarðabyggð
    6. 16.6 Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna
    7. 16.7 Sumarfrístund 2020
    8. 16.8 Uppbygging og rekstur Oddskarðs 2020-2025
    9. 16.9 Úthlutun íþróttastyrkja 2020