Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 660

20. apríl 2020, kl. 08:30 til 10:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 291 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 20. apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samkeppnisaðstæðum í smásölu raforku

    Mál 2004071 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Samkeppniseftirlitsins á samkeppnisaðstæðum í smásölu raforku.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að skila umbeðnum upplýsingum og gögnum til Samkeppniseftirlitsins.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2020 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2004074 Allur ferill málsins

    Framlagt sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - febrúar 2020, skatttekjur og launakostnað janúar - mars 2020.

  3. 3. Starfshópur um tjaldsvæði Fjarðabyggðar

    Mál 2004044 Allur ferill málsins

    Frá fundi bæjarráðs er vísað tillögu um að skipaður verði starfshópur sem fjalli um framtíðaruppbyggingu tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð. Framlögð drög erindisbréfs.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og fulltrúar hópsins verði Eydís Ásbjörnsdóttir formaður, Ívar Dan Arnarsson, Kristinn Þór Jónasson, Rúnar Már Gunnarsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og atvinnu- og þróunarstjóri. Jafnframt verði kallaðir til samráðs fulltrúar íbúasamtaka eftir atvikum.

  4. 4. Dalborg, hönnun á viðbyggingu

    Mál 2002039 Allur ferill málsins

    Fjallað um stækkun Leikskólans Dalborgar. Tillaga um að framlengt verði verkefni hóps starfsmanna sem falið var að vinna þarfa- og kostnaðargreiningu vegna stækkunar Leikskólans Dalborgar. Framlögð drög erindisbréfs.

    Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og að hópinn skipi bæjarstjóri formaður, sviðsstjóri framkvæmdasviðs, formaður fræðslunefndar, fræðslustjóri og leikskólastjóri.

  5. 5. Fundur í almannavarnarnefnd í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi 2020

    Mál 2004057 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð Almannavarnarnefndar frá 8. apríl sl.

    Þar er m.a. farið fram á samþykki sveitarstjórna um að sá kostnaður sem varð til í kjölfar fundar nefndarinnar frá 15.10.2019 verði greiddur sem hlutfall af íbúafjölda hvers sveitarfélags.

    Bæjarráð samþykkir þátttöku í kostnaði við rekstur almannavarnarnefndar en hann nemur liðlega 2,9 m.kr.og vísar kostnaði til gerðar viðauka.

  6. 6. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2020

    Mál 2004049 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 2. apríl sl.

  7. 7. Barnaverndarfundargerðir 2020

    Mál 2003129 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr.114 frá 16. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu