Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 257

20. apríl 2020, kl. 16:00 til 17:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 661 liður 13

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 20. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 291 liður 5

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 20. apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar

    Mál 1606124 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga framkvæmdasviðs um fasteignir sem settar verði á sölulista. Bætt er við eignum á Breiðdalsvík ásamt áhaldahúsum á Norðfirði og Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur framkvæmdasviðs.

  2. 2. Garð- og malarefni

    Mál 1609089 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um stöðu garðefnasvæða í Fjarðabyggð og framtíðarsýn málaflokksins, dagsett 15. apríl 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur umhverfisstjóra og felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna þær áfram.

  3. 3. Umsókn um garðefnasvæði á Reyðarfirði

    Mál 2004026 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar, dagsettur 2. apríl 2020, þar sem óskað er eftir svæði innan afmörkunar starfsmannaþorps Alcoa Fjarðaáls undir garðefnasvæði fyrir Reyðarfjörð og hugsanlega Eskifjörð líka. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra vegna vinnslu garðefnaúrgangs dagsett 3. apríl 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfisstjóra að skoða möguleika á Leirusvæðinu.

  4. 4. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2019

    Mál 1909098 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða haustið 2019 fyrir framkvæmdaárið 2020, dagsett 6. apríl 2020. Umsóknum var hafnað, þar sem önnur verkefni umsækjanda eru ókláruð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur málið fyrir á næsta fundi.

  5. 5. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2020

    Mál 2004049 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 2. stjórnarfundar Náttúrustofu Austurlands sem haldinn var 2. apríl 2020.

  6. 6. 730 Búðarmelur 6-16 - Umsókn um lóð

    Mál 2004061 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Nýjatúns ehf, dagsett 15. apríl 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Búðarmel 6 a til 6 e á Reyðarfirði undir 425 fm og 1063 rm raðhús.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðunum og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  7. 7. 750 Gilsholt 6-16 - Umsókn um lóð

    Mál 2004062 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Nýjatúns ehf, dagsett 15. apríl 2020, þar sem sótt er um lóðirnar við Gilsholt 6-16 á Fáskrúðsfirði undir 480 fm og 1200 rm raðhús. Jafnframt er óskað eftir að heimild til niðurfellingar 100% gatnagerðargjalda gildi fyrir þessa framkvæmd.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðunum og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu ásamt ósk um niðurfellingu gatnagerðargjalda.

  8. 8. 730 Búðareyri 11-13 Byggingarleyfi, breyting innanhúss

    Mál 2004039 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Vegagerðarinnar, dagsett 7. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til endurbóta innanhúss á skrifstofum, verkstæði og í geymslurými Vegagerðarinnar að Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði. Verkefnið felst í því að endurnýja lagnir, setja upp loftræstikerfi og innrétta húsnæðið uppá nýtt á um 430 m2 svæði, auk verkstæðis- og geymslurýmis á um 165 m2.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin

  9. 9. 730 Þernunes - byggingarleyfi, fjárhús

    Mál 2004067 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Þernu ehf, dagsett 15. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 140 fm fjárhús við hlöðu á jörðinni Þernunes í Reyðarfirði

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin.

  10. 10. 740 Miðstræti 23 - byggingarleyfi, sameining íbúða

    Mál 2001095 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Egils Birkis Stefánssonar, dagsett 15. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til breyta þremur íbúðum í eina í húsi hans að Miðstræti 23 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin

  11. 11. 735 Kirkjustígur 7 - byggingarleyfi, niðurrif

    Mál 2004091 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 18. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til rífa hús sveitarfélagsins við Kirkjustíg 7 á Eskifirði vegna fyrirhugaðra framkvæmda við ofanflóðavarnir í Lambeyrará. Umsögn Minjaverndar liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  12. 12. 735 Kirkjustígur 3b - byggingarleyfi, niðurrif

    Mál 2004092 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 18. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til rífa hús sveitarfélagsins við Kirkjustíg 3b á Eskifirði vegna fyrirhugaðra framkvæmda við ofanflóðavarnir í Lambeyrará.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  13. 13. 735 Túngata 13 - byggingarleyfi, niðurrif

    Mál 2004090 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 18. apríl 2020, þar sem sótt er um leyfi til rífa hús sveitarfélagsins við Túngötu 13 á Eskifirði vegna fyrirhugaðra framkvæmda við ofanflóðavarnir í Lambeyrará.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  14. 14. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Kynnt staða endurskoðunar Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027. Lagt fram innra vinnuskjal sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, dagsett 4. apríl 2020 um endurskoðun aðalskipulagsins.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að annar áfangi endurskoðunar haldi áfram í samstarfi við Alta ehf.

  15. 15. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram að nýju beiðni Fjarðabyggðarhafna, dagsett 20. mars 2020, um efnistöku innan afmarkaðs svæðis sunnan sundlaugarinnar á Eskifirði. Áætlað er að taka um 4000 rm af efni sem nýta á við hafnargerð sunnan Leirubakka 4. Umsögn íþrótta- og tómstundanefndar liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að 4000 rm af efni verði nýtt við hafnargerðina.