Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 258

27. apríl 2020, kl. 16:00 til 00:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 662 liður 9

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 27. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 291 liður 6

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 27. apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Framlögð framkvæmda- og viðhaldsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020. Farið yfir stöðu framkvæmda til samræmis við fjárhagsáætlun 2020.

  2. 2. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2019

    Mál 1909098 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu mála vegna framkvæmda sem styrktar hafa verið af Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að taka saman minnisblað um stöðu framkvæmda við áningarstaði sem styrktir hafa verið af Framkvæmdasjóðnum.

  3. 3. Umsókn um garðefnasvæði á Reyðarfirði

    Mál 2004026 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um möguleika þess að hafa garðefnasvæði á lóðinni við Hjallaleiru 19 á Reyðarfirði, dagsett 24. apríl 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur, í samræmi við tillögur umhverfisstjóra, að hægt sé að nýta lóðina við Hjallaleiru 19 undir garðefnasvæði.

  4. 4. Viðhald á sauðfjárveikivarnargirðingu

    Mál 2004088 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi umhverfis- og framkvæmdanenfdar Fljótdalshéraðs þar sem kannað er með vilja eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á samstafi við að ýta á um viðhald á sauðfjárvarnarlínu sem aðskilur Austfjarða- og Suðurfjarðahólf.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd Fljótdalshéraðs og fer fram á það við Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti að veita fé til viðgerða á varnarlínunni Reyðarfjarðarlínu (nr. 20 skv. auglýsingu nr. 88/2018) sem aðskilur Austfjarða-og Suðurfjarðahólf, þannig að ljúka megi þeim fyrir 15. júní 2020. Þar sem hlutar girðingarinnar eru orðnir hættulegir búfé, villtum dýrum og fólki eins og þeir eru, telur nefndin sér skylt að láta fjarlægja áðurnefnda hluta girðingarinnar á kostnað eiganda skv. 8. gr. girðingarlaga nr. 135/2001. Ljóst er að sjúkdómastaða sauðfjársjúkdóma í Austfjarða- og Suðurfjarðahólfi er ekki hin sama og því skylt að halda varnarlínunni við skv. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Nefndin harmar því að þurfa að grípa til ofangreindra ráðstafana, en vegna alvarlegrar vanrækslu á viðhaldi girðingarinnar undanfarin ár, er sóttvarnagildi hennar hvort sem er ekki til staðar.

  5. 5. Skógræktarfélag Reyðarfjarðar

    Mál 1704016 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað umhverfisstjóra, dags. 24. apríl 2020, um framtíðarsýn Skógræktarfélags Reyðarfjarðar í framhaldi af fundi með Skógræktarfélaginu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna áfram með tillögur skógræktarfélagsins, sbr. minnisblað umhverfisstjóra, í samræmi við umræður á fundinum.

  6. 6. Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar

    Mál 1805134 Allur ferill málsins

    Lagðar fram að nýju til umfjöllunar viðbætur og breytingar á umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar. Lagt fram minnisblað Eflu um úttekt á umferðaröryggi við Heiðarveg milli leik- og grunnskóla, dagsett 2. apríl 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að uppfæra umferðarsamþykkt í samræmi við umfjöllun á fundinum og leggja fram að nýju.