Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Viðhald á sauðfjárveikivarnargirðingu

Mál 2004088 Fyrst á dagskrá 27. apríl 2020, síðast 7. maí 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 258 liður 4

    Lagt fram erindi umhverfis- og framkvæmdanenfdar Fljótdalshéraðs þar sem kannað er með vilja eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á samstafi við að ýta á um viðhald á sauðfjárvarnarlínu sem aðskilur Austfjarða- og Suðurfjarðahólf.

    Lesa alla bókunina (144 orð til viðbótar)

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd Fljótdalshéraðs og fer fram á það við Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti að veita fé til viðgerða á varnarlínunni Reyðarfjarðarlínu (nr. 20 skv. auglýsingu nr. 88/2018) sem aðskilur Austfjarða-og Suðurfjarðahólf, þannig að ljúka megi þeim fyrir 15. júní 2020. Þar sem hlutar girðingarinnar eru orðnir hættulegir búfé, villtum dýrum og fólki eins og þeir eru, telur nefndin sér skylt að láta fjarlægja áðurnefnda hluta girðingarinnar á kostnað eiganda skv. 8. gr. girðingarlaga nr. 135/2001. Ljóst er að sjúkdómastaða sauðfjársjúkdóma í Austfjarða- og Suðurfjarðahólfi er ekki hin sama og því skylt að halda varnarlínunni við skv. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Nefndin harmar því að þurfa að grípa til ofangreindra ráðstafana, en vegna alvarlegrar vanrækslu á viðhaldi girðingarinnar undanfarin ár, er sóttvarnagildi hennar hvort sem er ekki til staðar.

  2. Bæjarráð, fundur 662 liður 9.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 258“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 291 liður 6.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 258“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is