Bæjarráð, fundur 662
4. maí 2020, kl. 08:30 til 11:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 291 liður 4
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 4. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfsemi fjölskyldusviðs
Mál 2004104 Allur ferill málsins
Farið yfir verkefni og starfsemi fjölskyldusviðs og helstu áherslur.
-
2. Álagning vatnsgjalds - breytt aðferð álagningar
Mál 2002002 Allur ferill málsins
Framlögð samantekt fjármálastjóra á hugmyndum um breytingu á álagningu vatnsgjalds í Fjarðabyggð í samræmi við ákvörðun bæjarráðs 28. október sl.
Til skoðunar er breytingar á álagningu vatnsgjalds í Fjarðabyggð. Bæjarráð vísar samantekt fjármálastjóra til vinnslu við fjárhagsáætlun 2021.
-
3. Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 2
Mál 2004150 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020. Viðaukinn er vegna framlaga til hjúkrunarheimila, fasteignakaupa og snjómoksturs. Heildaráhrifin eru til kostnaðarauka um 71,5 m.kr. í Aðalsjóði og verður viðaukanum mætt með lækkun eigin fjár Aðalsjóðs og lækkun handbærs fjár.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
4. Sorpmál í Fjarðabyggð
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um stöðu vinnslu á moltu í framhaldi af beiðni bæjarráðs um stöðu málaflokksins.
Bæjarráð telur fulla ástæðu að skoða framtíð jarðgerðar í sveitarfélaginu og felur framkvæmdasviði að skoða málið áfram í tengslum við endurskoðun á sorphirðu í Fjarðabyggð. Erindi og áframhaldandi vinnslu vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarstjóra.
-
5. Friðlýsing Gerpissvæðisins - Tilnefning í samstarfshóp
Mál 2001205 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Umhverfisstofnun þar sem beðið er um tilnefningu í samstarfshóp vegna undirbúnings friðlýsingar á Gerpissvæðinu. Tilnefning þarf að berast fyrir 7. maí nk.
Bæjarráð tilnefnir Jón Björn Hákonarson sem fulltrúa Fjarðabyggðar í samstarfshópinn.
-
6. Persónuverndarfulltrúi
Mál 2004160 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um skipan persónuverndarfulltrúa Fjarðabyggðar en samningur við núverandi fulltrúa rennur út í maí.
Mannauðsstjóri fer með persónuverndarmál hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt mannauðsstjóra að ganga frá umhaldi persónuverndarmála sveitarfélagsins til framtíðar.
-
7. Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID19
Mál 2002090 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um áhrif breytinga takmarkana sóttvarnalæknis frá og með 4. maí á starfsemi bæjarskrifstofu og nefndarstörf.
Farið yfir þjónustu og starfsemi hjúkrunarheimilanna í faraldrinum. Jafnframt farið yfir framkvæmdir og viðbrögð sveitarfélagsins vegna efnahagslegra áhrifa faraldursins.
Bæjarfulltrúar hafa á síðustu dögum verið að fá fyrirspurnir varðandi ástand og fjölda leiksvæða í Fjarðabyggð. Fyrir liggur að gerð var áætlun fyrir leiksvæði í Fjarðabyggð, sem hægt er að nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins, sem vinna á eftir. Á fjárhagsáætlun núverandi árs var tekið frá fjármagn til að fara í hluta af þeirri uppbyggingu og einnig þarf að fara í viðhald á leikvöllum og verður það gert nú í sumarbyrjun. Þá er einnig verið að fara yfir hugsanlega flýtingu á framkvæmdum í tengslum við viðspyrnu vegna Covid-19 faraldursins og eru leikvellir hluti af því.
Bæjarráð leggur áherslu á við framkvæmdasvið sveitarfélagsins að sem fyrst verði farið í uppbyggingu á leiksvæðum sem ákveðin hafa verið ásamt viðhaldi nú í vor.
-
8. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
Mál 2002033 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. apríl 2020.
-
9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 258
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 27. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.
- 9.1 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
- 9.2 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 20191909098
- 9.3 Umsókn um garðefnasvæði á Reyðarfirði2004026
- 9.4 Viðhald á sauðfjárveikivarnargirðingu2004088
- 9.5 Skógræktarfélag Reyðarfjarðar1704016
- 9.6 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134