Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Fjárhagsáætlun 2020 - viðauki 2

Mál 2004150 Fyrst á dagskrá 4. maí 2020, síðast 7. maí 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Bæjarráð, fundur 662 liður 3

    Framlagður viðauki 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020. Viðaukinn er vegna framlaga til hjúkrunarheimila, fasteignakaupa og snjómoksturs. Heildaráhrifin eru til kostnaðarauka um 71,5 m.kr. í Aðalsjóði og verður viðaukanum mætt með lækkun eigin fjár Aðalsjóðs og lækkun handbærs fjár.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 291 liður 13

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu viðauka.

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir viðauka við fjárhagsáætlun.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar í bæjarstjórn viðauka 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020. Viðaukinn er vegna framlaga til hjúkrunarheimila 24 m.kr., fasteignakaupa 12,5 m.kr. og snjómoksturs 35 m.kr. Heildaráhrifin eru til kostnaðarauka um 71,5 m.kr. í A hluta til hlutaðeigandi málaflokka og er honum mætt með lækkun á eigin fé aðalsjóðs og samstæðunnar í heild. Sjóðstaða lækkar úr 701 m.kr. í 629. m.kr. í árslok.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2020.

  3. Bæjarstjórn, fundur 291 liður 4.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 662“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is