Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 241

22. apríl 2020, kl. 11:00 til 12:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Eva Dröfn Sævarsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 661 liður 14

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl 2020 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 291 liður 7

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. COVID-19 - Leiðbeiningar og viðbragðsáætlanir hafna

    Mál 2003077 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar uppfærðar leiðbeiningar Landlæknis fyrir skip og hafnir. Verkefnastjóra hafna falið að koma leiðbeiningum á framfæri við starfsmenn Fjarðabyggðarhafna.

  2. 2. Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf

    Mál 2003122 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í hafnarstjórn erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um viðspyrnu af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf. Bæjarráð samþykkti tillögur sem fyrstu aðgerðir Fjarðabyggðar til viðspyrnu fyrir samfélagið vegna COVID-19 faraldursins á 656. fundi sínum þann 30. mars 2020.

    Lagt fram til kynningar og mun hafnarstjórn vinna að viðspyrnu í sínum málaflokki áfram.

  3. 3. Orkuskipti í höfnum

    Mál 2004042 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er eftir upplýsingum um framkvæmdaverkefni tengdum orkuskiptum í höfnum vegna úthlutunar fjármuna úr aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar.

    Hafnarstjórn hefur áður falið Eflu að taka saman upplýsingar um tengingar í höfnum Fjarðabyggðar með úrbætur í þeim efnum í huga. Svar hafnarstjórnar verður byggt á þeim upplýsingum og verður komið til ráðuneytisins fyrir 10.maí næstkomandi.

  4. 4. Mjóeyrarhöfn, fylling annar áfangi 2020

    Mál 2004076 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur sem barst frá Björgun eftir viðræður við þá um að gera tilboð í annan áfanga á Mjóeyrarhöfn.

    Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Björgun á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs í uppdælingu við Fjarðabyggðarhafnir og felur hafnarstjóra samningsgerð.

  5. 5. Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID19

    Mál 2002090 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í hafnarstjórn. Bæjarráð fór yfir stöðuna og verkferla hjá sveitarfélaginu vegna Covid-19 og þakkar starfsmönnum sveitarfélagsins sem og íbúum þess fyrir ómetanlegt framlag á þessum erfiðu tímum. Bæjarráð þakkar sérstaklega starfsmönnum skólastofnana, félags-, heimaþjónustu og hjúkrunarheimila fyrir þeirra störf.

    Þá hittist aðgerðarhópur Fjarðabyggðar daglega til að fara yfir stöðuna og almannavarnarnefnd Austurlands gegnir lykilhlutverki við undirbúning viðbragða og eftirfylgni.

    Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020

    Mál 1909177 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar lögð fram til samþykkis.

    Hafnarstjórn samþykkir gjaldskrá fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Jafnframt felur hafnarstjórn hafnarstjóra að ganga frá samningum við skipafélög varðandi geymslusvæði gáma.

  7. 7. Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020

    Mál 2002025 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir hafnarsjóðs á árinu og tekjur fyrsta ársfjórðungs.

    Hafnarstjórn fór yfir hugsanlega flýtingu framkvæmda og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna áfram að undirbúningi þeirra á grundvelli umræðna á fundinum.

  8. 8. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur veitt leyfi fyrir efnistöku sunnan sundlaugar á Eskifirði. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að undirbúa verkið og tryggja að það verði unnið hratt og að frágangi svæðisins verði lokið strax í kjölfar efnisflutninga.