Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 240

30. mars 2020, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 657 liður 10

    Fundargerð hafnastjórnar frá 30. mars 2020, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 290 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. COVID-19 - Leiðbeiningar og viðbragðsáætlanir hafna

    Mál 2003077 Allur ferill málsins

    Til að bregðast við þeim aðstæðum sem uppi eru þessa stundina þá hefur starfsemi hafnanna verið skipt upp til að lágmarka þann skaða ef upp kæmi smit hjá starfsmanni. Hafnarstjórn samþykkir viðbragðsáætlun Fjarðabyggðarhafna.

  2. 2. Siglingavernd fréttabréf 2020

    Mál 2003126 Allur ferill málsins

    Fyrsta fréttabréf siglingaverndar 2020 lagt fram til kynningar.

  3. 3. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020

    Mál 2001204 Allur ferill málsins

    Fundargerð 421.fundar Hafnasambands Íslands frá 20.mars síðastliðnum lögð fram til kynningar.

  4. 4. Upplýsingar frá Landhelgisgæslu Íslands

    Mál 2003121 Allur ferill málsins

    Kynntar upplýsingar frá Landhelgisgæslu Íslands varðandi heimild erlendra skipa í ríkiseign til komu í íslenskar hafnir. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að koma upplýsingum til starfsmanna hafna.

  5. 5. Reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen

    Mál 2003143 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Samgöngustofu er varðar breytingu á reglugerð um för yfir landamæri. Verkefnastjóra hafna er falið að koma upplýsingum til starfsmanna hafna.

  6. 6. Hafnarrafmagn á athafnasvæði Eskju - Eskifirði

    Mál 2002032 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf frá Eskju varðandi áform þeirra um landtengingu skipa við landanir í höfnum. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið en vill fá frekari gögn um staðsetningu og tengimöguleika fyrir aðra notendur. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs er falið að halda utan um málið.

  7. 7. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Hoffell

    Mál 2003127 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip dags. 19. mars 2020 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Reyðarfjarðarhöfn fyrir skipstjóra á MS Samskip Hoffelli. Hafnarstjórn samþykkir undanþáguna.

  8. 8. Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020

    Mál 2002025 Allur ferill málsins

    Yfirferð á framkvæmdum hafnarsjóðs árið 2020. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir framkvæmdalista hafnanna og tekjur hafnarsjóðs og leggja fyrir að nýju.

  9. 9. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020

    Mál 1909177 Allur ferill málsins

    Lagðar til breytingar á gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn samþykkir breytingar á gjaldskrá og felur verkefnastjóra hafna frágang hennar.

  10. 10. Erindi frá Eimskip - Gjaldskrá

    Mál 2002081 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál erindi frá Eimskip varðandi gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.

  11. 11. Áform Royal Arctic Line A/S

    Mál 2003150 Allur ferill málsins

    Lagður fram sem trúnaðarmál tölvupóstur frá Royal Arctic Line A/S.