Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 239

16. mars 2020, kl. 16:00 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Eva Dröfn Sævarsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 288 liður 5

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 16. mars samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Sjávarútvegsskólinn á Austurlandi 2020

    Mál 2003027 Allur ferill málsins

    Bréf Sjávarútvegsskólans er varðar samstarf og kostnaðarþátttöku sumarið 2020. Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í Sjávarútvegsskóla unga fólksins eins og undanfarin ár og felur verkefnastjóra hafna að vera í samskiptum við skólann.

  2. 2. Fundargerðir Fiskmarkaðs Austurlands

    Mál 2003079 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar Fiskmarkaðs Austurlands þann 27.febrúar síðastliðinn lögð fram til kynningar.

  3. 3. Fundargerðir Hafnarsambands Íslands 2020

    Mál 2001204 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð Hafnasambands Íslands frá 26.febrúar 2020.

  4. 4. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Lögð fram kostnaðaráætlun Eflu fyrir áætlaða framkvæmd við nýtt hafnarsvæði á Eskifirði ásamt tilboði í prufurekstur staura. Hafnarstjórn samþykkir að fara í að reka niður tilraunastaura sbr.meðfylgjandi tilboði um niðurrekstur tilraunastaura.

  5. 5. Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum

    Mál 2002152 Allur ferill málsins

    Tilboð frá Köfunarþjónustunni í setkjarnaboranir í Norðfirði og Reyðarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboðinu og felur verkefnastjóra hafna að vinna málið áfram.

  6. 6. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019

    Mál 1902165 Allur ferill málsins

    Hafnareglugerð 2020 lögð fram til samþykkis eftir breytingar í samræmi við athugasemdir samgönguráðuneytis. Hafnarstjórn samþykkir hafnareglugerð fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarstjórnar.