Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 238

27. febrúar 2020, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eva Dröfn Sævarsdóttir, varamaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 653 liður 12

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. febrúar sl. lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 288 liður 4

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 2. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 9

    Mál 1911123 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Hampiðjunni Ísland ehf um lengingu á stálþili við Naustahvamm 49 í Neskaupstað. Hafnarstjórn felur framkvæmdasviði að fara yfir forsendur og kostnað á lausnum til framtíðar og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  2. 2. Endurnýjun dráttarbáts - Undirbúningsvinna

    Mál 1911119 Allur ferill málsins

    Námskeið ætlað hafnsögumönnum verður haldið 16.-17.mars nk. á skrifstofu Faxaflóahafna. Hafnsögumönnum og/eða skipstjórum Fjarðabyggðarhafna er boðið að taka þátt í námskeiðinu. Hafnarstjórn samþykkir að senda þátttakendur á námskeiðið og felur verkefnastjóra hafna að halda utan um málið.

  3. 3. Hafnarreglugerð - endurskoðun 2019

    Mál 1902165 Allur ferill málsins

    Í október síðastliðnum var ný Hafnareglugerð Fjarðabyggðarhafna send Stjórnarráði Íslands til samþykkis og birtingar. Þann 25.febrúar síðastliðinn kom reglugerðin til baka frá samgönguráðuneytinu með athugasemdum sem lagðar eru hér fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir athugasemdir sem gerðar voru og felur verkefnastjóra hafna frágang þeirra og reglugerðarinnar í samræmi við umræður á fundinum.

  4. 4. Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum

    Mál 2002152 Allur ferill málsins

    Lögð fram verkefnistillaga frá Alta vegna mats á umhverfisáhrifum vegna efnistöku í Norðfjarðarflóa og innfjörðum. Hafnarstjórn samþykkir að fara í vinnu við tillögu að matsáætlun og fara yfir niðurstöður jafnharðan og þær verða skýrar.

  5. 5. Smábátahöfn Breiðdalsvík - stækkun

    Mál 2002150 Allur ferill málsins

    Lagt er til að samið verði við Guðmund Guðlaugsson um smíði á nýjum viðlegukanti í Breiðdalsvíkurhöfn á sömu forsendum og gert var á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að semja við Guðmund Guðlaugsson á forsendum kostnaðarmats sem fyrir liggur og felur hafnarstjóra frágang.

  6. 6. Könnun um afstöðu íbúa til komu farþegaskipa

    Mál 2002094 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa og atvinnu- og þróunarstjóra um könnun vegna stefnumótunar í ferðaþjónustu vegna komu farþegaskipa til Fjarðabyggðar. Einnig yfirferð á niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal íbúa Fjarðabyggðar um afstöðu þeirra til komu farþegaskipa. Fram kemur að sátt er meðal íbúa um núverandi fyrirkomulag á móttöku farþegaskipa í sveitarfélaginu. Hafnarstjórn mun horfa til framtíðar með niðurstöðuna í huga og gerðar ferðamálastefnu fyrir sveitarfélagið.