Hafnarstjórn, fundur 242
4. maí 2020, kl. 11:30 til 12:15, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
- Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 292 liður 6
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn um styrk úr Hafnarsjóði vegna dagskrár sumar 2020
Mál 2004163 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Menningarstofu Fjarðabyggðar um styrk vegna dagskrár sumarsins. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Menningarstofu Fjarðabyggðar samkvæmt beiðni líkt og síðustu ár.
-
2. Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf
Mál 2003122 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkti á 661. fundi sínum hugmyndir fjármálastjóra að aðgerðum vegna sumarstarfa og sumarverkefna. Í bókun bæjarráðs er sviðsstjórum falið að vinna áfram að aðgerðum og auglýst verði störf sem lögð eru til í minnisblaði.
Tillaga sviðsstjóra framkvæmdasviðs er að auglýsa tvö störf fyrir ungmenni 20-25 ára við almenn hafnarstörf og 10 störf fyrir 17 ára og eldri við almenn umhverfisverkefni á höfnum Fjarðabyggðar.
Hafnarstjórn samþykkir að auglýsa áðurgreind sumarstörf og felur hafnarstjóra utanumhald málsins.
-
3. Umhverfismat fyrir efnistökusvæði í Norðfjarðarflóa og innfjörðum
Mál 2002152 Allur ferill málsins
Drög að tillögu að matsáætlun fyrir efnistöku af hafsbotni í Norðfjarðarflóa lögð fram til samþykkis.
Hafnarstjórn samþykkir drög að tillögu að matsáætlun og að þau fari í kynningu. Jafnframt felur hafnarstjórn verkefnastjóra hafna að setja sig í samband við Orkustofnun og óska eftir að leyfi til rannsókna verði afgreidd frá stofnuninni hið fyrsta.
-
4. 740 Naustahvammur 64 - Umsókn um lóð
Mál 2004139 Allur ferill málsins
Fiskmarkaður Austurlands hefur sótt um lóð að Naustahvammi 64 undir starfsemi sína í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir úthlutun lóðar fyrir sitt leyti og vísar til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar. Jafnframt felur hafnarstjórn sviðsstjóra framkvæmdasviðs útfærslur á lóðinni í tengslum við umræður á fundinum.
-
5. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Lögð fram gögn er varða verðkönnun í gerð þriggja landfyllinga í sjó sunnan við Frystihús Eskju á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Haka ehf. og Dalbjörgu ehf. á grundvelli verðkönnunar. Hafnarstjórn felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs frágang og að hefja framkvæmdir.