Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 243

18. maí 2020, kl. 11:30 til 13:00, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Eva Dröfn Sævarsdóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 665 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 243 lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 292 liður 7

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 18. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2021

    Mál 2005026 Allur ferill málsins

    Framlagðar reglur um vinnu við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2021-2024. Umræða um vinnslu fjárhagsáætlunarinnar.

    Hafnarstjórn ræddi forsendur fjárhagsáætlunar og vinnslu hennar áfram. Hafnarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.

  2. 2. Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar

    Mál 2005063 Allur ferill málsins

    Svæðisráð auglýsir lýsingu fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar. Skipulagsstofnun fyrir hönd svæðisráðs óskar eftir ábendingum hafnarstjórnar um nálgun og efnistök í skipulagsvinnunni.

    Formaður og varaformaður hafnarstjórnar ásamt starfsmönnum sátu kynningarfund vegna málsins í liðinni viku. Svæðisráðinu hefur áður verið kynnt nýtingaráætlun fjarða sveitarfélagsins og verður hún lögð til grundvallar vinnunni af hálfu Fjarðabyggðar. Verkefnastjóra hafna og formanni falið að fylgja málinu eftir.

  3. 3. Umsókn um rannsóknarleyfi í Reyðarfirði

    Mál 2004013 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar umsókn Hafnarsjóðs um leitar- og rannsóknarleyfi til rannsókna á seti í sjó í Reyðarfirði.

    Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við umsóknina og felur verkefnastjóra hafna að fylgja henni eftir.

  4. 4. Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa

    Mál 2003074 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar endanleg umsókn Hafnarsjóðs um rannsóknarleyfi til rannsókna á seti í sjó í Norðfjarðarflóa.

    Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umsóknina og felur verkefnastjóra hafna að fylgja henni eftir.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020

    Mál 2001204 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð frá fundi Hafnasambands Íslands þann 27. apríl síðastliðinn.

  6. 6. Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020

    Mál 2002025 Allur ferill málsins

    Framkvæmdir við annan áfanga Mjóeyrarhafnar eru hafnar með uppdælingu efnis. Áætluð lok verksins eru í byrjun júní.

    Hafnarstjórn ræddi framkvæmdir við Mjóeyrarhöfn.

  7. 7. Eskifjarðarhöfn - stækkun

    Mál 2003091 Allur ferill málsins

    Tilkynning um stækkun Eskifjarðarhafnar hefur verið send Skipulagsstofnun og er þar komin í umsagnarferli.

    Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að fylgja málinu eftir við Skipulagsstofnun.

  8. 8. Erindi frá Siglingaklúbbi Austurlands

    Mál 2005097 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi frá Siglingaklúbbi Austurlands þar sem óskað er eftir að hafnarstjórn leggi til starfsmenn til starfa við klúbbinn í sumar.

    Hafnarstjórn felur hafnarstjóra í samráði við íþrótta- og frístundastjóra að fara yfir erindi Siglingaklúbbsins með aðstoð sumarstarfsmanna líkt og önnur félög fá við námskeið og æfingar ungmenna.

  9. 9. Orkuskipti í höfnum

    Mál 2004042 Allur ferill málsins

    Lögð fram tilkynning frá umhverfis-og auðlindaráðherra vegna orkuskipta í höfnum. Hafnarsjóður Fjarðabyggðar fékk 11,5 milljónir til verkefna hjá sér. Hafnarsjóður þakkar framlagið og felur verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs vinnslu málsins áfram.