Bæjarráð, fundur 665
25. maí 2020, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, varamaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 292 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 25. maí sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021
Mál 2005025 Allur ferill málsins
Lagðar fram áherslur slökkviliðsstjóra er varðar rekstur slökkviliðs og sjúkraflutninga í málaflokki 07 á árinu 2021.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlun 2021.
-
2. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020
Mál 2001149 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda- og viðhaldsverkefna á árinu 2020 með tilliti til áætlana. Framkvæmdir eru innan marka fjárveitinga.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
3. Málefni hjúkrunarheimila, fundur Sambands ísl. sveitarfélaga
Mál 2005127 Allur ferill málsins
Lögð fram samantekt frá fundi um málefni hjúkrunarheimila sem Samband íslenskra sveitarfélaga stóð fyrir 19. maí sl. ásamt minnisblaði fjármálastjóra um rekstur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð.
Bæjarráð telur með hliðsjón af efni fundarins sé rétt að Fjarðabyggð skoði vel allar hliðar rekstur síns á hjúkrunarheimilunum. Sveitarfélagið telur að lögum samkvæmt sé því ekki skylt að leggja þeim til frekari fjármuni, enda er rekstur heimilanna á málefnasviði ríkisins. Nauðsynlegt er nú að setja með formlegum hætti fram kröfugerð á hendur hlutaðeigandi aðilum, þ.e. Heilbrigðisráðuneytinu og Sjúkratryggingum Íslands. Bæjarráð felur fjármálastjóra að leiða þá vinnu og leggja þá kröfugerð fyrir bæjarráð þegar hún er tilbúin.
-
4. Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
Mál 2001248 Allur ferill málsins
Framkvæmdasjóður aldraðra hefur samþykkt fjórar af fimm umsóknum hjúkrunarheimilanna varðandi viðhaldsverkefni við heimilin.
Bæjarráð hefur áður samþykkt að farið verði í verkefni sem samþykkt hafa verið af framkvæmdasjóði. Bæjarráð vísar gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna framkvæmdanna til fjármálastjóra.
-
5. Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19
Mál 2005111 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, um gerð fjárhagsáætlana og viðauka við þær.
Bæjarráð vísar erindi til fjármálastjóra.
-
6. Bæjarhátíðir 2020
Mál 2005099 Allur ferill málsins
Minnisblað upplýsingafulltrúa er varðar bæjarhátíðir sumarið 2020 í framhaldi af umræðu á síðasta fundi.
Bæjarráð minnir forsvarsmenn hátíða á að framfylgja ber í hvívetna öllum þeim tilmælum sem koma frá almannavörnum og sóttvarnaryfirvöldum, og gæta vel að öllum sóttvörnum. Þá áréttar bæjarráð að það verður erfiðleikum haldið að framfylgja kvöðum sóttvarna í ástandi eins og nú er vegna COVID 19 faraldursins. Bæjarráð beinir því til hátíðarhaldara að ábyrgð þeirra er mikil og eðlilegt að það sé skoðað hvort hátíðir í Fjarðabyggð séu haldnar á þessu sumri. Því samþykkir bæjarráð að helmingur framlaga til hátíða sem ekki fara fram á árinu 2020 verði til viðbótar úthlutunar hátíðanna á árinu 2021 til þeirra sem þess óska.
-
7. Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Mál 2002039 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað starfshóps um viðbyggingu við Leikskólann Dalborg Eskifirði.
Bæjarráð þakkar starfshópnum fyrir vinnu sína og samþykkir að fara leið eitt sem fram kemur í minnisblaði starfshóps um viðbyggingu við leikskólann Dalborg. Jafnframt felur bæjarráð framkvæmdasviði ásamt eigna-,skipulags- og umhverfisnefnd að skoða hvaða byggingaform henti best og leggja fram tillögur um slíkt fyrir 1. ágúst næstkomandi. Bæjarráð vísar frekari umræðu um viðbyggingu við leikskólann Dalborg til fjárhagsáætlunargerðar 2021.
-
8. Sorpmál í Fjarðabyggð
Mál 1909099 Allur ferill málsins
Minnisblað verkefnastjóra í framhaldi af fundi um framtíð sorpmála í sveitarfélaginu sem haldinn var 18. maí sl.
Bæjarráð þakkar fyrir minnisblaðið. Bæjarráð telur að rétt sé að hefjast handa í úrgangsmálum í Fjarðabyggð í samræmi við tillögu 2 en þó þannig að skoðað verði hagræði af því að hluti rekstrarins verði útvistað.
Bæjarráð felur fjármálastjóra, sviðstjóra framkvæmdarsviðs og verkefnisstjóra sorpmála að koma með frekari tillögur á þessum grunni fyrir 1. júlí nk. og jafnframt að málið verði rætt í eigna-,skipulags- og umhverfisnefnd. Þá er bæjarstjóra falið að funda með Íslenska Gámafélaginu og Terra til að kynna þeim þessa ákvörðun og ræða jafnframt frágang samnings þeirra er hann rennur út um komandi áramót 20/21.
-
9. Reglur um meðferð brota í starfi áminningar, frávikningar og uppsagnir
Mál 1805186 Allur ferill málsins
Lagt er til nýtt heiti á reglum um meðferð brota. Nýtt heiti er Reglur um viðbrögð við brotum í starfi.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
10. Starfshópur um tjaldsvæði
Mál 2004044 Allur ferill málsins
Farið yfir störf starfshóps um tjaldsvæði í Fjarðabyggð. Óskað er eftir að skiladagur starfshópsins verði framlengt til 15. júní nk. en umfang vinnu hans reyndist meira en áætlað var.
Bæjarráð samþykkir að framlengja umboð hópsins til 15. júní nk.
-
11. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2020
Mál 2002033 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.maí lögð fram til kynningar.
-
12. Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2018 - 2022
Mál 1806146 Allur ferill málsins
Lögð fram tilkynning Jens Garðars Helgasonar um framlengt leyfi frá störfum í bæjarstjórn til 1. október 2020.
-
13. Styrkbeiðni til handa Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar
Mál 1908107 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað bæjarstjóra um eignarhald stúku við Eskifjarðarvöll.
Bæjarráð samþykkir að innleysa eignarhlut Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar í stúkunni við Eskifjarðarvöll og felur bæjarstjóra að ganga frá samningum í samræmi við minnisblað og umræður á fundinum.
Jafnframt er vísað til fjármálastjóra gerð viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna kaupa á stúkunni.
-
14. Félagsmálanefnd - 134
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 134 lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20212005022
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 260
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 260 lögð fram til afgreiðslu.
- 15.1 776.mál til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, með síðari breytingum (átak í fráveitumálum),2005079
- 15.2 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
- 15.3 Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar2005063
- 15.4 755 Heyklif, ferðaþjónusta - beiðni um umsögn vegna matsskyldu2005088
- 15.5 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta1909021
- 15.6 755 Deiliskipulag Heyklif1904069
- 15.7 750 Búðavegur 35 - Fyrirspurn um breytingu á skipulagi2004043
- 15.8 730 Óseyri 1 - byggingarleyfi, fjölgun fasteigna2005001
- 15.9 740 Hafnarbraut 15 - byggingarleyfi, viðbygging2004154
- 15.10 740 Egilsbraut 26 - Umsókn um stöðuleyfi, torgsöluhús við beituskúrinn2005077
- 15.11 735 Strandgata 9A - Umsókn um stækkun lóðar2005061
- 15.12 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
- 15.13 715.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ymsum lögum er varðar eignarráð og nýtingu fasteigna2005027
- 15.14 750 Stekkholt Fáskrúðsfirði2005108
-
16. Hafnarstjórn - 243
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 243 lögð fram til afgreiðslu.
- 16.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20212005026
- 16.2 Lýsing fyrir gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum til umsagnar2005063
- 16.3 Umsókn um rannsóknarleyfi í Reyðarfirði2004013
- 16.4 Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa2003074
- 16.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20202001204
- 16.6 Framkvæmdir hafnarsjóðs 20202002025
- 16.7 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
- 16.8 Erindi frá Siglingaklúbbi Austurlands2005097
- 16.9 Orkuskipti í höfnum2004042
-
17. Fræðslunefnd - 84
Fundargerð fræðslunefndar nr. 84 lögð fram til afgreiðslu.
- 17.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020