Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 666

8. júní 2020, kl. 08:30 til 10:37, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2021

    Mál 2005025 Allur ferill málsins

    Umræða um vinnslu fjárhagsáætlunar málaflokks slökkviliðs og sameiginlegs kostnaðar. Lögð fram minnisblöð bæjarritara, mannauðsstjóra og slökkviliðsstjóra. Tekið fyrir á næsta fundi.

  2. 2. Tölvur í skólum Fjarðabyggðar

    Mál 2005112 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað starfshóps þar sem metin er þörf á endurnýjun á tölvum starfsfólks í leik-, grunn- og tónlistarskólum í Fjarðabyggð. Vísað frá fræðslunefnd. Bæjarráð felur fjármálastjóra, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fræðslustjóra að kanna hvernig innkaupum á tölvum skólanna er best háttað og leggja fram áætlun um tölvukaup.

  3. 3. Húsnæðismál bæjarskrifstofu

    Mál 1810145 Allur ferill málsins

    Framlögð í drögum niðurstaða starfshóps um húsnæðismál bæjarskrifstofu. Bæjarráð felur starfshópnum umboð til áframhaldandi vinnu til áramóta, við útfærslu C, auk þess sem farið verði í þarfagreiningu með hverju sviði.

  4. 4. Málefni hjúkrunarheimila, fundur Sambands ísl. sveitarfélaga

    Mál 2005127 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að bréfi til heilbrigðisráðherra vegna rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð og kröfugerð um greiðslu áfallins taprekstrar fyrri ára. Jafnframt kynntir minnispunktar frá fundi Sambandsins með bakhópi um rekstur hjúkrunarheimila. Bæjarráð getur ekki unað við að rekstrarvandi hjúkrunarheimilanna lendi á rekstri sveitarfélagsins og ítrekar fyrri samþykktir sínar um að ríkið axli ábyrgð á rekstri þeirra. Þá minnir bæjarráð á ósamræmi það sem ríkjandi er, þar sem rekstur hjúkrunarheimila í nágrannasveitarfélögum er fjármagnaður beint af ríkisframlögum. Fundir sem haldnir hafa verið með ráðherra heilbrigðismála og þingmönnum hafa enn engum árangri skilað sem er með öllu óviðunandi. Bæjarráð telur að komi ekki til aðkomu heilbrigðisyfirvalda að fjárhagsvanda hjúkrunarheimilanna sé bæjaryfirvöldum í Fjarðabyggð ekki annar kostur fær, en segja upp samningum um rekstur heimilanna. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá bréfi til heilbrigðisráðherra vegna alvarlegs rekstrarvanda hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð.

  5. 5. Sýnileiki Fjarðabyggðar 2020

    Mál 2006023 Allur ferill málsins

    Upplýsingafulltrúi sat þennan lið og ræddi átak til að auka sýnileika Fjarðabyggðar og vitund almennings um sveitarfélagið. Bæjarráð líst vel á framkomnar hugmyndir og felur upplýsingafulltrúa að vinna áfram að þeim.

  6. 6. Staða framkvæmda árið 2020

    Mál 2004118 Allur ferill málsins

    Fjallað um málefni Sköpunarmiðstöðvar en þau voru til umfjöllunar á fundi bæjarráðs 27. apríl sl. Framlagt minnisblað framkvæmdasviðs og stjórnsýslu- og þjónustusviðs um stöðu framkvæmda og þeirra verkþátta og verkefna sem ráðast þarf í. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði um fyrirframgreiðslu 5 milljóna kr. lokaframlags sem greiða átti 2021. Vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka.

  7. 7. Uppbygging á æfingasvæði á Eskifirði

    Mál 2006024 Allur ferill málsins

    Beiðni Ungmennafélagsins Austra um lagfæringar á svæði innan við sundlaugina á Eskifirði. Vísað til skoðunar í íþrótta- og tómstundanefnd.

  8. 8. Fjármál sveitarfélaga í kjölfar Covid-19

    Mál 2005111 Allur ferill málsins

    Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra er varðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í tengslum við Covid-19 og beiðni um skil á upplýsingum um fjármálastöðu sveitarfélagsins í kjölfar faraldursins. Vísað til fjármálastjóra til afgreiðslu.

  9. 9. Samráðsfundir og viðbrögð vegna coronaveiru COVID19

    Mál 2002090 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs tillögu um að veitt verði fé til starfsmanna sveitarfélagsins sem þakklætisvotti fyrir framlag þeirra við þær erfiðu aðstæður er sköpuðust í samfélaginu er COVID 19 faraldurinn reið yfir. Skal fjármagnið nota í samráði stjórnenda stofnana og starfsfólks með tilbreytingu í huga og efla þannig liðsheild og starfsanda. Vill bæjarstjórn með þessu þakka starfsmönnum fyrir ómetanlegt framlag, gott samstarf og ábyrgð í störfum sínum á tímum sem réttilega eru sérstakir. Bæjarráð samþykkir að veitt verði 10.000 kr. á hvert fullt stöðugildi hjá sveitarfélaginu, alls um 4.000.000 kr. Fjármálastjóra falin gerð viðauka og mannauðstjóra falin frekari útfærsla í samstarfi við stofnanir sveitarfélagsins.

  10. 10. Átak í fráveitumálum

    Mál 2006008 Allur ferill málsins

    Bréf sambandsins er varðar styrki til fráveituframkvæmda á vegum sveitarfélaga í tengslum við sérstakt tímabundið fjárfestingaátak til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs Covid-19. Vísað til sviðsstjóra framkvæmdasviðs til afgreiðslu og kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  11. 11. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2020

    Mál 2005144 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að umsókn um tæplega 34 milljóna kr. lán úr Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda á árinu 2019. Lántakan er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins. Bæjarráð samþykkir lántöku.

  12. 12. Forsetakosningar 2020

    Mál 2004024 Allur ferill málsins

    Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 27.maí lögð fram til kynningar. Bæjarráð samþykkir tillögu í fundargerð um að kjörstaðir í Fjarðabyggð í forsetakosningunum 27. júní verði í Grunnskólunum í Breiðdal, á Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði, í Safnaðarheimilinu Reyðarfirði, Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði, Nesskóla og Sólbrekku í Mjóafirði. Jafnframt samþykkir bæjarráð að kjörfundur verði frá kl. 09:00 til 22:00, nema í Mjóafirði en kjörfundi þar mun ljúka um leið og lagaskilyrði verða til eða í síðasta lagi kl. 17:00.

  13. 13. Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar

    Mál 1805115 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað er varðar lítilsháttar breytingar á erindisbréfi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Vísað til fyrri umræðu og samþykktar í bæjarstjórn.

  14. 14. 750 Stekkholt 9 - umsókn um einbýlishúsalóð

    Mál 2005134 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Vilbergs Marinós Jónassonar, dagsett 22. maí 2020, þar sem sótt er um lóðina við Stekkholt 9 á Fáskrúðsfirði undir íbúðarhúsnæði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar.

  15. 15. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2018-2022

    Mál 1904039 Allur ferill málsins

    Arnfríður Eide Hafþórsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í hafnarstjórn í stað Jóns Björns Hákonarsonar.

    Jón Björn Hákonarson tekur við formennsku í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd af Einari Má Sigurðarsyni.

  16. 16. Nefndaskipan Fjarðalista 2018 - 2022

    Mál 1908104 Allur ferill málsins

    Sigurður Ólafsson tekur við formennsku í hafnarstjórn af Jóni Birni Hákonarsyni.

    Einar Már Sigurðarson tekur við formennsku í fræðslunefnd af Sigurði Ólafssyni.

    Kamma Dögg Gísladóttir tekur sæti Einars Más Sigurðarsonar sem aðalmaður í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

    Eva Dröfn Sævarsdóttir tekur sæti varamanns í hafnarstjórn í stað Grétars Rögnvarssonar.

  17. 17. Aðalfundur Lánasjóðs Sveitarfélaga ohf.

    Mál 2004037 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga verður haldinn föstudaginn 12. júní í Reykjavík. Jón Björn Hákonarson mun sækja fundinn f.h. Fjarðabyggðar með fullt og ótakmarkað umboð.

  18. 18. Fundarboð Stapa lífeyrissjóður 30.júní 2020

    Mál 2005066 Allur ferill málsins

    Ársfundur Lífeyrissjóðsins Stapa verður haldinn 30.júní í Hofi Akureyri. Bæjarráð felur fjármálastjóra að sækja fundinn.

  19. 19. Aðalfundur Samband sveitarfélaga á Austurlandi 2020

    Mál 2005139 Allur ferill málsins

    Lögð fram dagskrá og gögn vegna aðalfundar SSA sem haldinn verður 23. júní í Fjarðabyggð.

  20. 20. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2018-2020

    Mál 1803142 Allur ferill málsins

    Ársreikningur samtaka sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2019 lagður fram til kynningar.

  21. 21. Kauptilboð í Egilsbraut 6 Neskaupstað

    Mál 2005095 Allur ferill málsins

    Rúnar Már Gunnarsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa fundarliðar. Fyrir liggur kauptilboð í Egilsbraut 6 í Neskaupstað frá Versluninni Pan. Bæjarráð felur fjármálastjóra að gera gagntilboð.

  22. 22. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 261

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 261, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 22.1 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
    2. 22.2 Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir1804020
    3. 22.3 Opin leiksvæði í Fjarðabyggð1810205
    4. 22.4 Sandhaugar við kirkjugarðinn í Neskaupstað2005073
    5. 22.5 Frágangur gatna og umhverfi á Fáskrúðsfirði2004138
    6. 22.6 Sorpmál í Fjarðabyggð1909099
    7. 22.7 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar 20212005018
    8. 22.8 750 Stekkholt 9 - umsókn um einbýlishúsalóð2005134
    9. 22.9 735 Siglingaklúbbur Austurlands - framkvæmdaleyfi2005154
    10. 22.10 Stekkholt 11 - byggingarleyfi, íbúðarhús2005137
    11. 22.11 750 - Álfabrekka 3 - byggingarleyfi - bílskúr2005166
    12. 22.12 755.mál til umsagnar frumvarp til laga um fjarskipti,2005109
    13. 22.13 730. beiðni um áframhaldandi afnota af beitarlandi í landi Kollaleiru2005174
    14. 22.14 Stækkun Eskifjarðarhafnar - beiðni um umsögn2005125
    15. 22.15 Gjaldtaka vegna stöðuleyfa - Athugasemd2001190
    16. 22.16 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    17. 22.17 Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp vegna laga og reglugerða um mat á umhverfisáhrifum1912021
  23. 23. Hafnarstjórn - 244

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 244, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 23.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20212005026
    2. 23.2 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    3. 23.3 Ársreikningur Hafnasambands Íslands 20192005102
    4. 23.4 Umsókn um rannsóknarleyfi í Norðfjarðarflóa2003074
    5. 23.5 Strandgata - Gamla bræðsla Mjóeyrarvík2001014
  24. 24. Fræðslunefnd - 85

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 85, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 24.1 Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar2005171
    2. 24.2 Dalborg, hönnun á viðbyggingu2002039
    3. 24.3 Tölvur í skólum Fjarðabyggðar2005112
    4. 24.4 Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 20212004009
    5. 24.5 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20212005020
  25. 25. Íþrótta- og tómstundanefnd - 74

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 74, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 25.1 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2021
  26. 26. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 26

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar nr. 26, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 26.1 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20212005019
    2. 26.2 Verkefni menningarstofu 20202001116