Fræðslunefnd, fundur 85
3. júní 2020, kl. 16:30 til 18:30, Grunnskóli Eskifjarðar. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Þorvarður Sigurbjörnsson, varamaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 666 liður 24
Fundargerð fræðslunefndar nr. 85, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Heimsókn í skóla Fjarðabyggðar
Mál 2005171 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd heimsótti leikskólann Dalborg og Eskifjarðarskóla. Skólastjórnendur tóku á móti nefndinni, gengu með nefndarfólki um húsnæðið og fóru yfir helstu áherslur skólans. Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum fyrir góðar móttökur.
-
2. Dalborg, hönnun á viðbyggingu
Mál 2002039 Allur ferill málsins
Farið var yfir frumteikningar af viðbyggingu við leikskólann Dalborg og hugmyndir um endurbætur á eldra húsnæði skólans. Einnig var farið yfir minnisblað starfshóps um viðbyggingu við leikskólann Dalborg og minnisblað um þarfagreiningu á fjölda deilda í leikskólanum. Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögu starfshópsins sem fram kemur í minnisblaðinu og vísað málinu til vinnu við fjárhagsáætlun 2021. Fræðslunefnd fagnar að nú hylli undir framtíðarlausn í húsnæðismálum fyrir leikskólann Dalborg.
-
3. Tölvur í skólum Fjarðabyggðar
Mál 2005112 Allur ferill málsins
Í starfsáætlun fræðslumála fyrir árið 2020 kemur fram að meta skuli þörfina á endurnýjun tölvubúnaðar fyrir starfsfólk skóla og taka ákvörðun um tölvukaup. Fyrir liggur minnisblað starfshóps þar sem metin er þörf á endurnýjun á tölvum starfsfólks í leik-, grunn- og tónlistarskólum í Fjarðabyggð, auk þess sem gerð var gróf kostnaðaráætlun og lagt mat á hvort kaup á tölvubúnaði myndi rúmast innan núverandi fjárhagsramma til fræðslumála. Í minnisblaðinu er miðað við kaup á 114 vélum og áætlað að kostnaður geti verið á milli 20-25 milljónir. Þá kemur fram að óvarlegt sé að áætla að sá kostnaður rúmist inna fjárhagsramma, e.t.v. um helmingur kostnaðar. Starfshópurinn leggur til við fræðslunefnd að farið verði í verðkönnun í júní 2020 hjá stærstu tölvufyrirtækjum landsins og í framhaldinu verði keyptar vélar og settar upp í skólunum í haust. Fræðslunefnd tekur undir tillögur starfshópsins um verðkönnun í júní og kaup á nýjum búnaði í haust. Vísað til bæjarráðs.
-
4. Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
Mál 2004009 Allur ferill málsins
Ferðamálastefna Fjarðabyggðar er lögð fram til umsagnar hjá fræðslunefnd. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við stefnuna.
-
5. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
Mál 2005020 Allur ferill málsins
Til umræðu var starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar fyrir árið 2020. Fyrir lágu drög að minnisblaði fræðslunefndar til bæjarráðs þar sem tilteknar eru helstu breytingar á starfs- og fjárhagsáætlun milli áranna 2020 til 2021. Eftir umræður í nefndinni var fræðslustjóra falið að ljúka við minnisblaðið í takt við umræður á fundinum.