Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 86

8. júlí 2020, kl. 16:30 til 18:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 671 liður 13

    Fundargerð fræðslunefndar frá 8. júlí lögð fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir í umboði bæjarstjórnar samþykktina.

Dagskrá

  1. 1. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar

    Mál 1908022 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd mælir með við bæjarráð að farið verði í að dúkleggja sundlaugina á Reyðarfirði á vorönn 2021 og kennt sund það vorið í lauginni, íþróttakennsla væri þá leyst með öðrum hætti að vor og hausti 2021 eða þar til nýtt íþróttahús á Reyðarfirði verður komið í gagnið. Eftir samráð við fræðslustjóra og skólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar leggur fræðslunefnd til að ekið verði með nemendur í sund á Eskifjörð á haustönn 2020 fram að miðjum nóvember og síðan aftur tekið til við sundkennslu í dúklagðri laug seinni hluta aprílmánaðar 2021.

  2. 2. Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði

    Mál 2004112 Allur ferill málsins

    Vísað til umsagnar í fræðslunefnd fundargerð 4. fundar starfshóps um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði. Fræðslunefnd líst vel á framkomnar hugmyndir og leggur áherslu á að farið verði í framkvæmdir sem fyrst þannig að hægt verði að nýta húsið fyrir íþróttakennslu á haustönn 2021.

  3. 3. Örútboð á ritföngum 2020

    Mál 2006075 Allur ferill málsins

    Í júní fór fram örútboð á ritföngum fyrir grunnskólana í Fjarðabyggð. Tvö fyrirtæki sendu inn tilboð. Tekið var lægra tilboðinu sem kom frá fyrirtækinu A4-Egilsson ehf., en það hljóðaði upp á 1.331.234 kr. Lagt fram til kynningar.

  4. 4. Tölvur í skólum Fjarðabyggðar

    Mál 2005112 Allur ferill málsins

    Örútboð vegna kaupa á tölvubúnaði, 110 vélum, fyrir skóla í Fjarðabyggð var sent út 19. júní og frestur til að skila inn tilboðum er til dagsins í dag, 8. júní. Farið verður yfir innsend tilboð á næstu dögum.

  5. 5. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1704067 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til umfjöllunar í fræðslunefnd. Anna Berg Samúelsdóttir, umhverfisstjóri, kynnti drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd þakkar umhverfisstjóra fyrir góða kynningu. Málinu frestað til næsta fundar nefndarinnar.

  6. 6. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands

    Mál 2007038 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur fundargerð frá stjórnarfundi Skólaskrifstofu Austurlands sem haldinn var 29. júní 2020. Fundargerðin lögð fram til kynningar.