Fræðslunefnd, fundur 87
19. ágúst 2020, kl. 16:30 til 17:10, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 675 liður 9
Fundargerð fræðslunefndar nr. 87 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 296 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 19. ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samningur um skólamáltíðir í grunnskólum Fjarðabyggðar 2017
Mál 1708143 Allur ferill málsins
Lögð fram til upplýsinga framlenging til eins árs, á grundvelli fyrri samnings við Fjarðaveitingar um skólamáltíðir í grunnskólum Fjarðabyggðar.
-
2. Gjaldskrár leikskóla og skólamáltíða
Mál 2008015 Allur ferill málsins
Í starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 stendur að gjaldskrá leikskóla og skólamáltíða í grunnskólum breytist frá og með 1. ágúst 2020. Breytingin á gjaldskrá leikskóla er lækkun hádegismáltíðar um helming eða úr 2.937 kr. í 1.468 kr. og gjald fyrir skólamáltíð í grunnskóla lækkar einnig um helming og fer úr 300 kr. í 150 kr. Gjaldskrá leikskóla fyrir ágúst verður leiðrétt með reikningum í september. Lagt fram til kynningar.
-
3. Tölvur í skólum Fjarðabyggðar
Mál 2005112 Allur ferill málsins
Eftir örútboð á 110 starfsmannatölvum í leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar var lægsta tilboði sem jafnframt uppfyllti öll skilyrði útboðsins tekið. Tilboðið hljóðaði upp á 16.817.984 kr. Á grundvelli útboðsins voru keyptar inn 116 tölvur. Fræðslunefnd óskar starfsmönnum skólanna til hamingju með nýja búnaðinn.
-
4. Örútboð á ritföngum 2020
Mál 2006075 Allur ferill málsins
Eftir örútboð á ritföngum fyrir grunnskóla Fjarðabyggðar var tilboði A4 tekið. Tilboðið hljóðaði upp á 1.331.234 kr. Lagt fram til kynningar.
-
5. Tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags
Mál 2008061 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd tók til umræðu tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags. Fræðslunefnd vill vinna að því að setja reglur varðandi stuðning við nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám utan lögheimilissveitarfélags. Ákveðið að setja á fót starfshóp sem komi með tillögur að reglum til fræðslunefndar í lok september 2020. Lagt er til að hópurinn verði skipaður þremur fulltrúum fræðslunefndar, Einari Má Sigurðarsyni, Þuríði Lillý Sigurðardóttur, Jóhönnu Sigfúsdóttur, fræðslustjóra og fulltrúa skólastjórnenda frá tónlistarskólum Fjarðabyggðar.
-
6. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2021
Mál 2005020 Allur ferill málsins
Tekin var umræða um starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar fyrir árið 2021. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
-
7. Fundaáætlun fræðslunefndar haustið 2020
Mál 2008062 Allur ferill málsins
Farið var yfir drög að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir haustið 2020. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi fundaáætlun.