Gjaldskrár leikskóla og skólamáltíða
Mál 2008015 Fyrst á dagskrá 17. ágúst 2020, síðast 3. september 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárSkólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Bæjarráð, fundur 674 liður 2
Í starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 stendur að gjaldskrá leikskóla og skólamáltíða í grunnskólum breytist frá og með 1. ágúst 2020. Breytingin á gjaldskrá leikskóla er lækkun hádegismáltíðar um helming eða úr 2.937 kr. í 1.468 kr. og gjald fyrir skólamáltíð í grunnskóla lækkar einnig um helming og fer úr 300 kr. í 150 kr. Gjaldskrá leikskóla fyrir ágúst verður leiðrétt með reikningum í september.
Bókun frá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Lesa alla bókunina (192 orð til viðbótar)
Í ljósi þeirra efnahagslegra áhrifa vegna covid 19, samdráttar í tekjum sveitarfélagsins, aukins rekstrarkostnaðar og lántöku vegna þessa, leggur fulltrúi Sjálfstæðisflokksins til að meirihlutinn endurskoði lækkun á skólamáltíðum og haldi þeim óbreyttum. Óvissan er mikil um komandi tíma og ætti sveitarfélagið að stíga varlega niður í öllum útgjaldaliðum.
Bókun meirihluta Framsóknarflokksins, Fjarðalistans auk Miðflokksins.
Meirihluti L, B og M- listi taka undir að ýmis efnahagsleg óvissa er nú uppi í samfélaginu og nauðsynlegt að rýna allar efnahagslegar aðgerðir vel. En þar með er það ekki sagt að rétt sé að fara ávallt í niðurskurð í efnahagsástandi eins og nú er og sjálfstæðismenn í Fjarðabyggð leggja ávallt til í tillögum sínum. Nauðsynlegt getur líka verið að sveitarfélagið stígi inn og auki þjónustu og framkvæmdir til að koma á móts við íbúa sína á ýmsa vegu. Lækkun skólamáltíða liggur þegar fyrir í samþykktri starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggð fyrir árið 2020. Málefni fjölskyldunnar hafa verið og munu verða í forgangi hjá núverandi bæjaryfirvöldum og á því er engin breyting. Þá er það ljóst að aðgerð eins og þessi kemur fjölskyldufólki hvað best.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir framlagða gjaldskrá leikskóla og skólamáltíða. Dýrunn Pála Skaftadóttir situr hjá.
-
Fræðslunefnd, fundur 87 liður 2
Í starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 stendur að gjaldskrá leikskóla og skólamáltíða í grunnskólum breytist frá og með 1. ágúst 2020. Breytingin á gjaldskrá leikskóla er lækkun hádegismáltíðar um helming eða úr 2.937 kr. í 1.468 kr. og gjald fyrir skólamáltíð í grunnskóla lækkar einnig um helming og fer úr 300 kr. í 150 kr. Gjaldskrá leikskóla fyrir ágúst verður leiðrétt með reikningum í september. Lagt fram til kynningar.
-
Bæjarstjórn, fundur 295 liður 6.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 674“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 675 liður 9.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 87“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 296 liður 5.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 87“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.